Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 34

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 34
Tímarit Máls og menningar þjóðfélagsleg yrkisefni fara að segja til sín fyrir alvöru, enda segir hann í upphafsljóði þeirrar bókar: Eg orti áður fyrri um ástir, vor og blóm. En nú er harpan hörðnuð og hefur skipt um róm. Þó verður að geta þess að í Álftimar kvaka (1929) eru tvö Ijóð sem boða það sem koma skyldi. Þau heita Gamla sagan og Ef ég segði þér allt. Þau eru bæði af trúarlegum toga, en fjalla um aðstöðumun ríkra og fátækra. Orðaval eins og „hreysi öreiganna" og „auðvaldsins örn“ talar sínu máli. Hin harðnaða harpa í Ég lœt sem ég sofi syngur um erfiðismanninn, um kjör hans og kúgun, von hans og vonbrigði, og um nauðsyn barátt- unnar fyrir réttlátara þjóðskipulagi. Heimskreppa auðvaldsheimsins mark- ar þessum tíma svipmót, stéttaátökin fara harðnandi, einnig á íslandi. Þegar harðast sverfur að knýja aðstæðurnar verkafólkið til að finna sam- takamátt sinn. I aðför kreppunnar hafa hin flokkspólitísku samtök jafn- aðarmanna klofnað, og Jóhannes skipar sér í sveit hinna róttækusm afla sem boða byltingu og stofnun nýs ríkis með valdatöku verkalýðsstéttanna. I þrengingum þessara tíma birtist jafnframt bjargföst trú á lokasigur fólks- ins, og þeirri trú eru baráttuljóðin í Ég lcet sem ég sofi og Samt mun ég vaka (1935) helguð. Með allmikilli einföldun má segja að þjóðfélagsleg ljóð þessara bóka skiptist í tvo meginflokka. Annars vegar eru sögur ein- staklinga sem spegla kjör stétta sinna. Lesandinn dregur ályktun af þeirri speglun, og þannig á hinn pólitíski boðskapur að komast til skila. Hér má nefna kvæðin Karl faðir minn og Atvinnulaus þar sem annars vegar er fjallað um basl kotbóndans og hins vegar um böl atvinnuleysisins í heimi verkamannsins á krepputímum. Og svo eru bein brýningarljóð, oft borin fram af upphafinni mælsku og hiklausri sigurvissu. Af þessu tagi eru ljóðin Fyrsti maí og Morgunsöngur. I þeim báðum er barátta fólksins tengd öflum sjálfrar náttúrunnar. Rauðir fánar blakta í mjúkum morgun- blænum og vorið kallar fólkið til starfs og stórra dáða: Og gusuniklir öreigar ganga um götuna, ryki þakta. Þeir ryðjast sem rennandi móða, — en rauðir fánarnir blakta. 144
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.