Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 65
Frásögn án fyrirsagnar
— Hann heitir Fidel Castro.
Þremur árum síðar var ég í Caracas og þá virtist ótrúlegt að þetta nafn
hefði brotið sér leið á svo stuttum tíma og af svo miklu afli inn í miðju
atburðarásarinnar í álfunni. En jafnvel þá hefði engum dottið í hug að
fyrsta sósíalíska byltingin í Rómönsku Ameríku væri að fæðast í Sierra
Maestra-fjöllum. Hins vegar vorum við sannfærðir tun að hún væri að
fæðast í Venezuela, þar sem máttugt samsæri alþýðunnar hafði gert út af
við kúgunarstjórn hershöfðingjans Marcos Perez Jimenez á einum sólar-
hring.
Séð utan frá hafði þessi aðgerð virst ótrúleg, sökum þess hve einföld
hún var, hversu fljótt hún gekk fyrir sig og hvern árangur hún bar. Einu
fyrirmælin sem almenningur hafði fengið voru þau, að klukkan tólf á
hádegi 23. janúar 1958 skyldi blásið í öll bílhorn, öll vinna stöðvuð og
jafnframt ættu þá allir að fara út á götu að steypa harðstjórninni. Jafnvel
á ritstjórnarskrifstofum vel upplýsts tímarits, þar sem margir starfsmanna
voru virkir í samsærinu, virtist þessi tilskipun barnaleg. En á tilsettum
tíma hófst gríðarlegur hávaði bílakórsins og umferðaröngþveitið varð slíkt
að annað eins hafði ekki þekkst í þessari borg, sem þó var fræg fyrir um-
ferðaröngþveiti, og fjölmargir hópar námsmanna og verkamanna þusm út
á göturnar og tóku að grýta hermenn stjórnarinnar. Hlíðarnar umhverfis
borgina voru þaktar marglitum hreysum sem líktust jesújötum og þaðan
streymdi nú fylking fátæklinga sem breytti borginni í vígvöll. I ljósaskipt-
unum barst sú fregn gegnum dreifða skothríð og sírenuvæl og varð mönn-
um til léttis, að fjölskylda Perez Jimenez hefði falið sig í skriðdreka og
beðist ásjár í erlendu sendiráði. Nokkru fyrir dögun varð skyndilega þögn
á himni og síðan braust út fagnaðaróp mannfjöldans og kirkjuklukkur
tóku að glymja og verksmiðjusírenur að væla og bílar að flauta og út um
alla glugga barst straumur af þjóðlegum söngvum og þetta hélt áfram
svo til óslitið í tvö blekkingaár. Perez Jimenez hafði flúið af ræningjastóli
ásamt nánustu meðsektarmönnum sínum og flogið til Santo Domingo í
herflugvél. Flugvélin hafði staðið frá hádegi með hreyflana í gangi á La
Carlota flugvellinum í nokkurra kílómetra fjarlægð frá forsetahöllinni
Miraflores en engum hafði hugkvæmst að setja þar upp stiga fyrir harð-
stjórann flýjandi þegar hann kom þangað eltur af leigubílasveit, sem að-
eins var nokkrum mínútum of sein. Perez Jimenez, sem leit út eins og
stórt smábarn með hornspangargleraugu, var halaður upp í flugvélina á
kaðli með ærinni fyrirhöfn og vegna þessa umstangs gleymdi hann hand-
175