Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Síða 68

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Síða 68
Tímarit Máls og menningar — Verið ekki ragur, kapteinn. GranmaG var líka ofhlaðin. Flugmaðurinn leit á hann og síðan á okkur hina, með niðurbælda heift í augunum. — Munurinn er bara sá, sagði hann, að enginn okkar er Fidel Castro. En athugasemdin hafði hitt í mark. Hann teygði handlegginn yfir af- greiðsluborðið, reif blað úr flugskipanablokkinni og kreisti það í lófa sér. — Allt í lagi, sagði hann, — við förum þá, en ég læt það hvergi sjást skrifað að vélin sé ofhlaðin. Hann stakk bréfkúlunni í vasa sinn og gaf okkur merki um að fylgja sér. Sem við gengum út að flugvélinni og ég á báðum áttum milli með- fæddrar flughræðslu og löngunar til að kynnast Kúbu, spurði ég flug- manninn fullur efasemda: — Kapteinn, haldið þér að við komumst alla leið? — Það er hugsanlegt, svaraði hann, með hjálp Virgen de la Caridad del Cobre.7 Þetta var hrörleg tveggja hreyfla flugvél. Sá orðrómur komst á kreik meðal okkar að liðhlaupi úr her Batista hefði rænt henni og flogið til Sierra Maestra þar sem hún hefði síðan staðið yfirgefin undir berum himni allt til þessa míns ógæfudags, þegar hún var send að sækja sjálfs- morðskandídata til Venezuela. Farþegarýmið var þröngt og illa loftræst, sætin voru lasin og megn fnykur af súru hlandi mengaði loftið. Hver og einn bjó um sig sem best hann gat, sumir sátu á gólfinu í þröngum gang- inum innan um farangurinn og kvikmynda- og sjónvarpsbúnaðinn. Eg fann til loftleysis þar sem ég sat hálfklemmdur úti við glugga aftast í vél- inni, en nokkur huggun var mér þó í sjálfsöryggi félaga minna. Skyndi- lega tuldraði einn af þeim æðrulaususm í eyra mitt, gegnum samanbitnar tennur: „Þú ert heppinn að vera ekki flughræddur.“ Þá fyrst komst ég á barm örvæntingarinnar, þegar mér varð ljóst að allir vom jafnskelkaðir og ég, en földu óttann bak við hugrekkissvip, rétt eins og ég. í flughræðslunni miðri er tómarúm, eins konar fellibylsauga, þar sem maður kemst á óminnisstig forlagatrúarinnar, og þetta ástand er það eina sem gerir okkur kleift að fljúga án þess að deyja. A mínum endalausu og svefnlausu næturflugferðum hef ég aðeins getað komist á þetta náðarstig þegar ég hef komið auga á munaðarlausa smástjörnu sem fylgir flugvél- nm yfir úthöf einmanaleikans. Eg leitaði hennar án árangurs þessa vondu nótt yfir Karabíska hafinu úr sálarlausu tveggja hreyfla vélinni sem flaug gegnum hrjúf skýjaþykki, breytilega vinda, hyldýpi full af eldingum, flaug 178
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.