Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 71
Erik Skyum-Nielsen
Um Vagn Lundbye og bækur hans
Tímaritið birdr í þessu hefti smásögu eftir Vagn Lundbye, og gefst þar
með kostur á að kynnast einum af dugmesm og eftirtektarverðustu höf-
undum danskra nútímabókmennta. Höfundarverk Vagn Lundbye tilheyrir
hinni ungu kynslóð frá síðasta áratug sem sótti innblástur bæði til beat-
tónlistar, nýrra vímugjafa og tilvistarheimspeki, marxisma, nútíma mál-
vísinda. Hann er með hugsunarhætti sínum og bókmenntatækni fulltrúi
þeirra rithöfunda sem skrifa samtímis uppreisn æskunnar og Vietnam-
stríðinu. En hann er engu síður verndari og viðhaldsmaður hefða, sem
kemur greinilega fram í bókum hans þar sem hann notar með ýmsum
hætti málfar og áhrifabrögð frá eldri höfundum. Einnig hefur hann þá
sérstöðu meðal danskra nútímaskálda að vera í senn einna „danskastur“
þeirra og óvenjulega víðförull. Vagn Lundbye hefur á síðari árum gefið
sérstakan gaum að vandamálum minnihlutaþjóða — grænlendinga, sama,
indíána — og hefur kynnst löndum og lífskjörum þeirra af eigin raun.
Vagn Lundbye er fæddur árið 1933 og hefur hlotið kennaramenntun.
Hann hóf ritferil sinn árið 1964 og hefur lifað af ritstörfum síðan 1967.
Hann hefur unnið á mörgum sviðum — skrifað skáldsögur og textasöfn,
einnig gert kvikmyndir og útvarpsleikrit. Nýlega kom hann fram í nýju
hlutverki, sem ljóðskáld, þar eð hann gaf út árið 1977 ljóðabókina „Digte
1977“.
Greina má í verki Vagn Lundbye tvö tímabil, fyrir og eftir 1970. Bækur
hans á sjöunda áratug einkennast af friunlegum tilraunum í frásagnar-
tækni bæði hvað varðar atburðarás og sögumann. Þær brjóta í bága við
hina epísku frásagnarhefð og fela þannig í sér gagnrýni á þá mannsmynd
sem endurspeglast í hefðbundnum skáldsögum. Formið er því hinn sam-
einandi þáttur í fyrri bókunum, en í þeim seinni er það efniviðurinn. Síðan
1970 hefur hann lagt minni áherslu á bókmenntalegar tilraunir, en í stað-
inn hefur komið viðleitni til að mynda nýja pólitíska vitund á grundvelli
umhverfisverndar, þjóðernis og sósíalisma.
í fyrsm þrem bókum sínum, skáldsögunum „Signalement“ (1966),
181