Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Síða 93

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Síða 93
Saga úr sveitinni Um kvöldið beið gólfið skafið en það kom enginn Hrólfur. Hvað eftir annað var gengið að skellihurðinni og það var gengið úti svo að marraði í snjónum og hún kallaði Hrólfur? Hrólfur? en þá var allt í einu ekkert fótatak lengur, hann stóð kyrr einhvers staðar þarna úti og vildi ekki koma inn. Hún fann óþol koma í sig. Þetta var óþolandi. Hún byrjaði að skafa hraðar og hraðar þangað til svitinn rann niður í augun og hún varð að hætta meðan hún strauk hann burt með hendinni og sá að hún var að skafa margskafið gólf. Þá henti hún sköfunni og ruddist fram í dyr og kallaði hátt og reiðilega: Hrólfur. Þeir Holtsbræður og vinnumaðurinn þeirra stóðu við sláttinn niðri á túni. Hvers vegna voru þeir komnir í Efstakot? Hún horfði þegjandi um smnd og fór svo inn. Ef maður vinnur ekki kemur einhver og segir: Hvað isé ég nú? Maður vill ekki espa þá upp sem segja fyrir verkum. Nóg er samt. Svo mátti heldur ekki gleyma að ganga frá mjólkinni. Hún tók skjói- una og gekk með hana inn í búrið. Barnið var farið að öskra mjög hátt í rjóðrinu sínu. Þegar hún var búin að hella mjólkinni í trog tók hún ausu, sökkti henni í mjólkina og færði telpunni. Hún drakk allt úr ausunni og lygndi svo afmr augunum. Anna ætlaði að koma ausunni fyrir á sínum stað en mundi ekki hvar hún hafði verið. — Það er ekki von að maður viti hvar allt á að vera á öðrum bæjum, tautaði hún hálfhátt við sjálfa sig. Það er best að koma sér heim. Hún var enn með ausuna í hendinni. Það var miður dagur og skýjafar og svartur bakki úti við sjóndeildarhring. Hún fetaði sig á svig upp eftir hlíðinni, varð móð og settist. Jökuláin lá eins og mórautt reipi eftir daln- um, bærinn í Holti rann næstum saman við umhverfið séð ofan úr fjalli en hún vissi að þarna bjuggu Holtsbræður og höfðu vinnumann. Þeir vom eins og þrír litlir stautar niðri á túni að slá. Konan stóð á fæmr þó hana verkjaði í skrokkinn og það slægi út um hana köldum svita. Maður slórar ekki þegar maður er að fara heim til sín og hefur gleymt tímanum á öðr- nm bæjum. Hún fikraði sig hærra og hærra og vissi að bráðum yrði hún komin upp fyrir brúnina og þá gæti hún tekið beina stefnu á Efstakot og þá yrði ekki lengur á fótinn. Þegar hún kom upp á brúnina, svo það sást ekki nema í miðjar hlíðar hinum megin ef maður leit við, var farið að hvessa og þá tók hún eftir því að það hafði verið logn og tiltölulega hlýtt meðan hún var að ganga brekkurnar. Fyrsm regnskúrirnir komu á fleygiferð utan af heiði, bleyttu þessa konu 203
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.