Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 101

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1978, Page 101
Annað gamalkunnugt ævintýri nýtir Þorsteinn í öðru hvatningarljóði: Karls- son, Lítill, Trítill og fuglarnir, þangað sem bókin sækir nafn sitt (42). Karls- son er þar orðinn að okkur sem reynum að leysa vandann hvert í sínu skoti: Jafnan þegar við karlssynir hyggjumst leysa vandann í logni fellur á fárviðri svo fiðrið úr sæng Daladrottníngar þyrlast um loft og lendur. En það þýðir ekkert að bauka einsamall: síðast vantar alltaf fáeinar fjaðrir — og loks fallast okkur hendur. Við verðum að muna eftir náunganum, „orðum hans augum og höndum", þá fer okkur að ganga bemr. Þetta er verka- lýðsljóð, byltingarljóð, þó lágt fari, og það fer vel á því að nota þetta frábæra ævintýri í þessu skyni. Þorsteinn notar ævintýraminni í einu hvatningarljóðinu enn, sem er jafnvel ennþá hnitmiðaðra en ljóðið um karlssyni. í Riddarasögu (59) segir frá manni sem hefur látið sér hugsjónina nægja, látið sig dreyma stór- ar hetjudáðir, látið veraldarljóðsins Ijósa riddara ræna afrekum sínum meðan hann sefur. Það er ekki nóg að láta sig dreyma, bendir Þorsteinn á, og ráðið er að koma riddaranum á óvart í skálka- skjóli draumsins: Sveiflaðu brandinum sjálfur næst þegar dagar. Tíminn er naumur, er boðskapur Þor- steins í þessari bók, við verðum að fara að búa okkur undir uppgjörið — bylt- inguna? — sem er í nánd. Innan skamms dynur orustan yfir og þá eru Umsagnir um beskur „taldir þínir dreymnu hérvistardagar" (62). Þá ber okkur að standa keik, nýta okkur það besta úr fortíðinni, arfi ljóða, sagna og ævintýra, þá stöndum við á bjargi og skortir ekki vopn. Þú hvessir augun í áttirnar, bifast hvergi; og orð er í svip þinn greypt sem felur í sér vonina: Víst er það kleift... Svo spornarðu sárum iljum við aldanna bergi; ormsins skolta mylur sorg þín og heift. Þegar að lokaorustunni um frið og rétt- læti kemur þá verða ljóð Þorsteins nýt vopn, eins og hann ætlar þeim líka að vera. Þorsteinn frá Hamri hefur verið heill- andi skáld allt frá fyrstu bók sinni, en aldrei held ég að hann hafi sent frá sér jafnheilsteypt verk og Fiðrið úr sæng Daladrottníngar. Þarna eru að sönnu mörg torræð ljóð sem kannski verða seint almenningseign, en þarna eru líka ljóð sem ganga beint til lesandans. Form- lega er Þorsteinn hefðbundnari hér en í síðustu bókum sínum, stuðla notar hann mikið en þó ekki þrískipta, rím er al- gengt listbragð og stundum mjög snjallt. Með því að nýta sér hefðina eins og hann gerir getur hann tjáð óróleika og upplausn með því einu að brjóta sínar eigin reglur, dæmi um það er ljóðið Nátttröllið. Þorsteinn notar myndhverf- ingar og persónugervingar mikið, eins og hefur komið fram í dæmum hér að framan. Annað stílbragð er þó fullt eins algengt hjá honum, ekki síst í 2. hluta bókarinnar, en það er að segja frá á einfaldan hátt eða lýsa einhverju með beinum myndum þannig að lesanda 211
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.