Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Blaðsíða 44
Tímarit Aláls og menningar
fólk sem fyrirfór sér. Djúpt var undir klöppinni, og fólk leitt á lífinu hóf
sæbarinn stein á kviðinn undir klæði sín, reyrði að með snæri og kastaði
sér i djúpið. Þannig var til einskis að iðrast og æpa á eftir.
Þá um haustið gerðist undur mikið i Grindavík. Einn góðan veðurdag
teiknaði nýi kennarinn á töfluna eitthvert krafs og sagði börnunum
hvernig egg konunnar frjóvgast.
Fruman skýst eins og ör í eggið, sagði kennarinn og teiknaði fisk sem
reynir að brjótast gegnum skurn á hænueggi.
Um kvöldið frétti konan á loftinu hvers konar fræðsla væri veitt
skólabörnum í Grindavík. Konuna greip æði og hún lamdi saman hnef-
um. Hún hlunkaðist svo á gólfinu að glertauið skalf í skápunum niðri hjá
okkur. Konan þótti vera forfrömuð manneskja og heimsborgari í raun og
veru, hún hafði átt heima bæði í Bjarnaborg og Pólunum. Þar eignaðist
hún nokkrar dætur með einhverjum vönduðum mönnum, sem gáfu dætrum
sínum nafn en giftust ekki konunni. Nú var hún gift og vissi bókstaflega
allt milli himins og jarðar. Dætur hennar voru einnig snillingar, en
einkum á tónlistarsviðinu. Þær kunnu þá list að leika með fingrum á varir
sér hið tilkomumikla tónverk: Ví-ví-vella-búdda-líka-púta-amen. Og
þegar þær sögðu búdda og púta, þá börðu þær báðum hnefum í gúlpandi
kinnarnar, þannig að loftið small úr munninum með vatnskenndum
pútu-hljómi.
Nú ákvað konan að aðrar eins dætur og hennar skyldu aldrei ganga í
skóla til kennara sem teiknaði á töfluna seiði sem ætlaði inn í hænuegg.
Guð gefur konunni börnin, sagði hún.
Já, hann er ansi kvensamur, sagði maðurinn hennar. Og hvað er
kennarinn að skipta sér af frjóvguninni, hefur hann ekki nóg með
kennsluna?
Jafnvel börnum varð ekki svefnsamt um nóttina. Það brakaði svo í
gólfum og rúmum eftir æsifregnina. Næsta morgun hóf konan strax að
safna undirskriftum mæðra til að bola kennaranum frá. Hann var ásakaður
fyrir að hafa teiknað klám á skólatöfluna, og einnig var hann sakaður um
kommúnisma.
En mál konunnar fékk öfugan endi. Þannig var að bróðir kennarans
290