Tímarit Máls og menningar - 01.10.1981, Blaðsíða 111
tíðina líður fer honum að leiðast og loks
er hann feginn að komast i land. Um
haustið fær sjórinn þó endurnýjað að-
dráttarafl i augum Loga. Hann fær 5000
krónur í sinn hlut og (209):
Aður en hann var kominn alla leið
heim til sin var hann staðráðinn i þvi,
að næst þegar hann hitti Pálma ætlaði
hann að spyrja hvort hann mætti ekki
koma með einn eða tvo túra næsta
sumar.
Kallamannasamfélag
Það er nýstárlegt fyrir landkrabba að fá að
kynnast sildveiðum og þá ekki siður lifinu
um borð í síldarbát heila vertið. A Sleipni
eru 11 skipverjar fyrir utan Loga, Pálmi
skipstjóri, Ási stýrimaður, Jón og Magnús
vélstjórar, Sævar kokkur og hásetarnir
Haukur, Leifi keingur, Rúdolf, Mundi,
Gunni og Konni. Af öllum þessum
mönnum fáum við svipmyndir, sumir
verða ekki miklu meira en nafnið tómt og
eitt áberandi persónueinkenni, t. d. Jón
með skeggið, Leifi keingur og Mundi með
lægðirnar og hægðirnar. Aðrir sýna á sér
fleiri hliðar, t. d. Pálmi skipstjóri, Gunni
og Konni. Konni verður einna minnis-
stæðasrur skipverka enda er hann sá sem
Loga þykir vænst um. Hann er sá sem
yrkir lausavisur um borð og kann þjóð-
sögur, fræðir Loga um alla heima og
geima og á honum festast ekki óhreinindi
— fyrr en í vertiðarlok þegar hann drekk-
ur sig moldfullan, verður drullugur upp
fyrir haus og sýnir ofbeldishneigð örstutta
stund.
Allir skipverjar eru Loga góðir enda er
Logi besta barn. Þeir striða honum eins og
hver öðrum, en þeir vernda hann vakandi
og sofandi. Engin harka er sýnd hjá þess-
Umsagnir um bœkur
um karlmönnum nema vinnuharkan.
Einu sinni bregður þó út af þessu. I vari
undan Langanesi í brælu verða skipverjar
úrillir, „og Logi fann að honum var fyrir
bestu að láta fara sem minnst fyrir sér.“
(148) Eftir þessa bið sigla þeir fyrir
Langanes og Gunni segir Loga að nú verði
hann að gera það sem allir sjómenn þurfi
að gera í fyrsta skipti sem þeir sigla fyrir
Langanes. Og hvað er það, spyr drengur-
inn (151):
— Þú átt að fara upp á dekk og slá
tippinu á þér tíu sinnum í frammastrið
um leið og við siglum í röstina.
Þetta vill Logi ekki og það verða snörp
átök um buxnaklauf hans, en Konni
kemur til hjálpar strax og drengurinn fer
að gráta. Eftirköst verða engin.
Dramatíska uppbyggingu að þessum
atburði vantar, þvi milli þess sem dreng-
urinn finnur leiðann og illskuna gripa
áhöfnina og þess þegar Gunni og Leisi
reyna að fá útrás fyrir leiðann með því að
stríða stráknum svona stórkarlalega, er
frásögn af friðsamlegum samræðum Loga
og Rúdolfs i stýrishúsinu um það þegar
Rúdolf missti föður sinn. Spenna verður
því engin þótt atvikið bjóði upp á það.
Þetta karlasamfélag um borð í Sleipni
reynist vera ákaflega gott litlum dreng
sem er fjarri móður sinni og systkinum
heilt sumar. Til hvers þarf maður mömmu
þegar maður á ellefu pabba?
Frœðandi en ekki spennandi
Fleiri atvik en hið áðurnefnda bjóða upp á
spennu í Pelastikk án þess að höfundur
notfæri sér það. Raunar virðist það ásetn-
ingur Guðlaugs Arasonar að gera sögu
357