Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Side 24
Tímarit Máls og menningar
hefur vikið á áberandi hátt frá lífsmynstri fyrirmyndar Ólafs Kárasonar, Magn-
úsar Hjaltasonar. Þegar Ólafur gengur á jökulinn og bindur þar með enda á líf
sitt er hann 33—34 ára, Magnús var hins vegar 43 ára er hann lést úr krabba-
meini og gefur tilfærsla þessi áberandi vísbendingu sem ekki þarf að fjölyrða
um. Þá má nefna tvö atriði sem þjóna þeim tilgangi að auka þjáningar Ólafs.
Fyrst frammi fyrir sýslumanni þar sem Ólafur er bundinn aftan í hross og
teymdur þannig milli staða, slíka meðferð fékk Magnús Hjaltason hins vegar
ekki í viðureign sinni við sýslumann. Þá eiga þeir það báðir sameiginlegt að hafa
sent frá sér sambýliskonuna vegna óbærilegrar sambúðar. í lífi Magnúsar kemur
hin sjúka sambýliskona Ingibjörg ekki aftur til hans, sem Jarþrúður gerir hins
vegar og verður nánar vikið að því síðar. Fleiri atriði mætti tína til í þeim
tilgangi að sýna fram á réttmæti þeirrar fullyrðingar sem kemur fram í dokt-
orsritgerð þýska bókmenntafræðingsins Giinter Kötz frá 1966, er hann segir að
Laxness hafi vísvitandi valið lífi Ólafs Kárasonar það mynstur, sem á máli
bókmenntafræðinnar nefnist jesú-gervingur eða jesú-eftirmyndun.11
Jesú-gervingurinn
í ritgerðinni „Inngángur að Passíusálmum", sem Halldór Laxness samdi árið
1932 og endurskrifaði tíu árum síðar, hefur hann sjálfur fjallað um jesú-gerving
bókmenntanna á þessa leið: Jesú-gervingurinn er „tákn hins undirokaða, fyrir-
litna mannkyns, sem er þó um leið hið æðsta sem við þekkjum, guðdómlegt í
eðli sínu.“12 Hann nefnir dæmi um rithöfunda sem hafa notað þetta tákn í
verkum sínum eins og Thomas Mann, Sinclair Lewis, Theodor Dreiser og
Upton Sinclair. Orðrétt segir skáldið á þessa leið: „Þó eru ef til vill þessi örlög
hins útskúfaða, lítillækkaða og hrjáða, en þó um leið hins guðdómlega, túlkuð
á tímabærastan og samþjóðlegastan hátt fyrir smekk vorrar aldar í Chapl-
ins-gervinu, þannig að segja má, að Chaplin sé hinn týpiski Jesús vorra tíma.“13
Þar sem nefnd ritgerð er samin skömmu fyrir samningu Heimsljóss og endur-
skrifuð og endurútgefm skömmu eftir útkomu alls verksins má telja að áhrifa
frá skilningi þeim á jesú-gervingnum sem þar kemur fram gæti í persónusköpun
Ólafs Kárasonar. Ekki er heldur laust við að nýju sparifötin skáldsins Ólafs
Kárasonar, sem hann klæðist er hann fer af stað í fangelsið í Reykjavík, minni
ofurlítið á Chaplin-gervið. Sá skilningur á jesú-gervingnum sem fram kemur í
ritgerðinni „Inngángur að Passíusálmum“ er rcyndar aðeins ein mynd
jesú-gervingsins eins og hann birtist í bókmenntum. Að skilningi Laxness er
14