Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Side 90
Edward P. Thompson
Frelsið og sprengjan
Þau tvö bréf sem hér fara á eftir, birtust upphaflega i breska tímaritinu NewStatesman 24.
apríl 1981 — og hefur það blað hvorki fyrr né síðar fórnað jafnmörgum dálksentímetr-
um undir eina grein. Tilefni þessara skoðanaskipta var ferð Thompson-hjónanna, sem
bæði eru sagnfræðingar, til Prag í hitteðfyrra. Þar ætluðu þau aö ræða við tékkneska vini
sína um málefni friðarhreyfinga, en komu víða að lokuðum dyrum. Tékkneskur and-
ófsmaður, sem búsettur er i heimalandi sinu, skrifaði Thompson opið bréf undir dul-
nefninu Václav Racek til þess að skýra fyrir honum hvers vegna erindi hans í Prag var
tekið af slíku tómlæti. Þess má geta að sjónarmið Raceks í garð vestrænna friðarhreyf-
inga minna um margt á gagnrýni ýmissa andófsmanna í Sovétrikjunum (t.d. Andrei
Sakarofs) og Austur-Evrópu á slökunarstefnuna. Þá er og rétt að taka fram að vafasamt
er að telja Racek samnefnara fyrir skoðanir austur-evrópskra baráttumanna fyrir mann-
réttindum á friðarhreyfingum; þannig mun t.d. hafa ríkt fremur jákvæður andi í garð
þessara hreyfinga á ráðstefnu landflótta andófsmanna í París síðastliðið haust.
Breski sagnfræðingurinn Edward P. Thompson er fæddur 1924 og menntaðist við
háskólann í Cambridge. Hann varð snemma róttækur og var í forystusveit lýðræðisafla í
kommúnistaflokknum breska fram að 1956, þá skildu leiðir og Thompson varð einn af
brautryðjendum „nýja vinstrisins“ (New Left) og einn af ritstjórum New Left Review
sem margir kannast við.
E.P. Thompson hefur verið mikilvirkur rithöfundur á sviði sagnfræði og pólitíkur og
virtur i sínu heimalandi. Stærsta sagnfræðiverk hans til þessa er saga enskrar alþýðu, The
Making of the English Working Class (1963) en meðal annarra verka hans eru William
Morris, Romantic to Revolutionary (endursk. útgáfa 1977) og Whigs and Hunters. Origin of
the Black Act (1975). Hann hefur einnig verið afkastamikill greinahöfundur á ólikum
sviðum og dregið þær helstu saman í greinasafnið The Poverty of Theory (1978). Þá eru
ótaldar fjölmargar útgáfur sem hann hefur staðið að, ýmist einn eða í félagi við þekkta
breska marxista á borð við Raymond Williams.
A síðastliðnu ári var Thompson boðið að halda hinn árlega Dimbleby fyrirlestur í
BBC, bresku útvarpsstöðinni, en þegar til kastanna kom bannaði yfirstjórn útvarps-
stöðvarinnar fyrirlestrahaldið án þess að færa rök fyrir banninu. Nú er þessi fyrirlestur
kominn á prent og hefur þegar vakið athygli i Englandi.
A meginlandi Evrópu er Thompson samt þekktastur fyrir störf sín í þágu friðar-
hreyfingarinnar og hingað til lands kemur hann í endaðan marsmánuð í boði íslenskra
herstöðvaandstæðinga. Jafnframt því sem hann stappar í þá stálinu flytur hann fyrir-
lestur um sagnfræðileg efni við heimspekideild Háskóla Islands.
80