Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Síða 91
Frelsið og sprengjan
Prag, 12. desember ‘80.
Kæri Edward Thompson.
Ég frétri af heimsókn yðar ril Prag og hversu óvænta stefnu hún tók. Eg er
sannfærður um einlægan vilja yðar til þess að starfa með samtökum almennings
í landi okkar og hef því ákveðið að skýra fyrir yður ástæður þess, að brugðist var
við komu yðar með þessum hætti.
Mér þótti vænt um að þér skylduð vilja kynna yður þau rök, sem hnekkja
ótvírætt þeirri greiningu yðar sem er ástæðan fyrir því að þér væntuð samvinnu
við einhverja hliðstæða hreyfingu hérlendis. í greiningu yðar á „lögmálsbund-
inni þróun í átt til tortímingar“ er þáttur beggja risaveldanna í þessu ferli lagður
að jöfnu. Ég get hvorki fallist á það, né hvert röksemdir yðar leiða.
Þér lítið svo á að gagnkvæm tengsl risaveldanna, eins og þau koma fram í
vígbúnaði þeirra, séu
ástand sem einkennist af andstöðu og gagnkvæmni, vegna þess að aukinn
vígbúnaður beggja aðila fer að hluta til fram samkvæmt rökum gagnkvæmni og
hlítir jafnvel ítarlegum reglum sem báðir aðilar hafa fallist á.
Það skiptir því ekki litlu, að þér eruð, þrátt fyrir þetta, hlutdrægur í skoðun
yðar á sovéska risaveldinu. Þér komist að þeirri niðurstöðu, að „aukinn víg-
búnaður í Sovétríkjunum stafi ekki af árásar- eða innrásarhneigð, heldur eigi
hann rætur að rekja til hugmyndafræði og skrifræðis“ og sé „fyrst og fremst í
varnarskyni". En þér hirðið ekki um flókna greiningu á hugsanalegum tengsl-
um hugmyndafræði og skrifræðis annars vegar og árásar- og innrásarhneigðar
hins vegar. Af því leiðir, að þér getið kallað óhrekjanlegar staðreyndir um árásar-
og innrásarhneigð „hættulegan þrýsting, sem á rót að rekja til staðnaðrar
hugmyndafræði og stjórnlistar, sem í eðli sínu er vígreif.“
En rétt greining á þessum tengslum í alræðisríkjum sýnir að það hlýtur að
vera samband milli hugmyndafræði og skrifræðis annars vegar og árásar- og
innrásarhneigðar hins vegar. Grundvöllur þeirra tengsla er hugmyndafræði sem
stefnir að útrýmingu, þ.e.a.s. hugmyndafræði er eitthvað annað og meira en
framkvæmd þeirra þriggja atriða sem þér nefnduð.
Ég þarf ekki að útlista þessa greiningu fyrir yður, því að hún er ákaflega
aðgengileg. Ég vísa til bókar Hannah Arendt: Uppruni alrceðis (The Origins of
Totalitarianism). Þrátt fyrir nokkrar breytingar á alræðisstefnu austurblokkar-
innar og að horfið var fr£ þjóðarmorði (það getur enn breyst) eftir dauða Stalíns,
er víða um aukna valdbeitingu á öllum hugsanlegum sviðum að rceða. Valdbeiting í
TMM VI
81