Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Síða 14

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Síða 14
námsefni skólanna og áður var. Heimilda- rýni og formgerðarsagnfræði nútímans hafa þokað honum úr sessi. I rannsóknum er hann heldur ekki sú lykilpersóna sem hann var á 19. öld og í byrjun þeirrar tutt- ugustu. Og það stendur reyndar heima, að við getum ekki lengur treyst á frásagnir hans sem fyrr. Margar af bestu sögum Snorra eru flökkusögur eða skáldskapur að meira eða minna leyti. En hann er hvorki verri höfundur fyrir vikið né heldur eru verk hans minna um verð til skilnings á for- tíðinni nema síður sé. Þegar menn gera sér ljóst hversu mjög hann mótar efnivið sinn, skilja þeir hve mikilhæfur sagnfræðingur hann var. Og þegar menn rannsaka rök- semdafærslur hans, skýringar og mat, fá þeir innsýn í hugsun, gildismat og hegðun íslenskra tignarmanna á fyrri hluta 13. aldar og kannski einnig skilning á mikilsverðum þáttum í íslensku og norsku miðaldasam- félagi. Hér er nefnilega um athuganda að ræða sem sjálfur var þátttakandi í stjóm- málunum sem hann lýsir og hafði jafnframt athyglisgáfu, góða yfirsýn, ályktunar- og tjáningarhæfni sem hlýtur að vekja virð- ingu og aðdáun. Eftir Stiklastaöaorustu Snorri birtist hvarvetna í Heimskringlu sent stjómmálaskýrandi. Sem dæmi má taka lýsingar hans á atburðunum eftir bardagann við Stiklastaði. Ólafur konungur liggur veginn á vígvellinum. Liðsmenn hans eru ýmist fallnir eða flúnir. Sveinn Danakon- ungur, móðir hans Alfífa og bandamenn þeirra úr hópi höfðingja og bænda í Þrændalögum fögnuðu sigri. En þá taka undarlegir hlutir að gerast. Sjúkir menn sem snerta lík konungs verða heilir. Jafnvel ári síðar er lík konungs óskemmt og fagurt, og hár hans og skegg hafa sprottið sent ekkert væri. Nýju valdhafamir setja ströng lög og njóta lítillar lýðhylli. Ári eftir dauða sinn er konungurinn, sem áður var hataður svo mjög, lýstur dýrlingur og jarðneskar leifar hans lagðar í skrín, og fjómm árum síðar eru dönsku herramir famir, án þess að til teljandi átaka hafi komið, og sonur Ólafs helga, Magnús, er sæmdur konungstign barn að aldri. Mikil og skyndileg umskipti hafa orðið í stjórnmálum landsins. Hvemig má skýra þau? Hér er um klassískan sagn- fræðivanda að ræða, og umskiptin hafa valdið sagnfræðingum miklum heilabrot- um allt fram á þennan dag. I augum Snorra og samtímamanna hans var þetta mál að vissu leyti auðskiljanlegt. Að þeirra dómi gat enginn vafi leikið á að Guð var að verki. Snorri var án efa sann- færður um að kraftaverk áttu sér stað eftir dauða Ólafs, að hann var sannur dýrlingur og að Guð greip inn í söguna af þeirri ástæðu. En hann lætur þó ekki þessa skýr- ingu duga eina saman. Að dómi Snorra heyrir það til undantekninga að Guð hafi bein afskipti af sögu mannanna. Allajafna eru athafnir mannanna sjálfra orsakavaldur sögulegra atburða. Og þó að Guð grípi inn í atburðarásina er hluta skýringarinnar að leita í mannlegum aðstæðum. Foringjar uppreisnarinnar I túlkun sinni á atburðunum beinir Snorri þess vegna athyglinni öðru fremur að tveimur mönnum, höfðingjunum Einari þambarskelfi og Kálfi Árnasyni, sem báðir eru úr Þrændalögum, því fylki sem Snorri telur skipta sköpum á þessum tíma. Einar var einn af fomum mótherjum Ólafs. Eftir 12 TMM 1991:3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.