Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Side 24

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Side 24
flögur. Og ég sá svanina færa sig undan því regni með langan sveigðan hálsinn að speglast í lygnunni. Á ekkert að fara að gerast, æpti friðarspi 11irinn á svölunum og stóð upp með skrifblokkina á lofti og mundaði pennann yfir auðu blaðinu: maður er ekki fyrr sloppinn undan kynvillingnum en allt fellur í dauðalogn og tómleika. Hvernig væri að koma sér heim, segirtalkórinn með grænmálaðar varir sem urðu einsog löng laufblöð þegarþær þögnuðu aftur, í hvítsmurðu andlitinu og blátt kringum augun og svartur sporbaugur teiknaður utan um en augabrýnnar upprættar svo þeirra sá ekki skil. Þið ættuð að pakka kallinum aftur inn í plastið strákar. Og negla lokið á kassann yfir honum. Því ég er farinn, og vona að þið gangið snyrtilega frá, og skiljið við einsog það var þegar þið komuð. Að óþörfu sýnist mér. Ég fer slyppur heim helvítin ykkar. Og hvem djöfulinn ert þú að flangsa aftur, segir hann og slær með reglustiku ofan í kollinn á manninum fyrir aftan hann svo einglymið datt úr klemmunni og hárkollan skekktist á þeim manni: Það er ekki verra en vant er að geta ekki farið í leikhús án þess að það sé verið að nauðga manni opinskátt og fyrir allra augum. Þú verður borinn út þinn skelmir og listmorðingi ef þú bærir á þér meðan við flytjum okkar skáldskap, kallar sá sem hafði setið annars hugar á bekknum og sótt í sig veðrið. Já, segir sá sem hafði leikið gamla manninn, og hafði nú rétt úr kútnum, kastað ellibelgnum, hinn gjörvilegasti maður: Það voru orð í tíma töluð. Og ekki seinna vænna að reyna að halda uppi listrænum aga. í þessu musteri. Þar sem við látum reyna á hefðina, að hún hindri ekki né hefti, heldur greiði fyrir listinni. Svo hún nái að fegra líf okkar. Dýpka það. Svo það bruni ekki frá okkur. Og verði búið fyrr en varir. Að hún göfgi. Og vari okkur við. Heldurðu þetta sé málfundur? hrópar friðspillir úr sæti. 22 TMM 1991:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.