Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 36

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 36
ið á forsendum karla. Það má nefnilega snúa öllu upp á andskotann, til þess var hann skapaður. Verk Jónasar liggja næsta vel við höggi ef við höfum hina „femínísku sýn“ að leiðar- I jósi við túlkun þeirra. Ég ætla að tileinka mér hana um stund og greina Sláttuvísu („Fellur vel á velli / verkið karli sterkum") samkvæmt því sjónarmiði að þar megi greina skarpar andstæður hins kvenlega og þess karllega. „Femínísk“ túlkun á Sláttuvísu Jónasar Hallgrímssonar Bókmenntastofnunin (karlhefðin) hefur af- greitt Sláttuvísu Jónasar Hallgrímssonar sem saklausan og lýrískan sveitasæluskáld- skap. Er það dæmigert fyrir viðhorf þeirrar stofnunar sem ætíð stendur vörð um sjón- armið karla. En hver er hinn raunverulegi boðskapur kvæðisins til kvenna? Fellur vel á velli verkið karli sterkum Orðaval skáldsins vekur sérstaka athygli og lýsir ótvíræðri aðdáun á því sterka og karl- mannlega. blómin bíða dóminn bítur ljár í skára ... Hér hittir ekki vinur vini á fögrum velli, heldur mætast eyðileggingarafl karlveldis og það litla og kvenlega (blóm). En um leið gætir þama ákveðins tvískinnungs hjá skáldinu sjálfu. Hann hefur afneitað þeim „smávinum fögru“ sem hann mærði svo í mörgum ljóða sinna (sbr. „. . . blessaðu, faðir! blómin hér, blessaðu þau í hvurri sveit“). Er tvískinnungur í garð hins kven- lega reyndar eitt helsta einkenni rómantísks skáldskapar. Glymur Ijárinn, gaman! ... Ekki er nóg með að eyðingarstarfi karlveld- isins (helstu iðju þess urn aldir) fylgi hopp og hí, heldur hljóma frýjunarorð karlsins til kvenverunnar sem gengur á eftir og hreins- ar valinn: heft er hönd á skafti, höndin ljósrar drósar. Eltu! áfram haltu! ekki nær mér, kæra! Nei, „ekki nær mér kæra!“, því að sjálf- sögðu er hann, karlinn, alltaf feti framar. Nálgist hún hann um of þá ógnar það karl- mennskuímynd hans. Hann hlýtur því að þagga niður í henni á tungumáli sem byggir á orðum eins og: „Ekki“ („Ekki má“, hafa ævinlega verið skilaboð karla til kvenna) og „Áfram haltu!“ („Svona er lífið Valgerður, það verður að vinna,“ sagði karlinn þegar hann setti pokann á bak kerlingu sinni). Hér fær kvenveran þau sömu boð, í skipunartón. En hún má heldur ekki fara of fjarri karl- inum þvíþá missirhann völd yfirhenni. Og ekki getur hann stillt sig um að gorta af „afrekum“ sínurn: Arfi lýtur orfi, allar rósir falla, stutta lífið styttir sterkur karl í verki, heft er hönd á skafti, hrífan létt mér ettir, glymur ljárinn, gaman! grundin þýtur undir. 34 TMM 1991:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.