Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 90

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 90
feita ljótleika er að hann er aðlaðandi; sjúk- lega aðlaðandi, fáránlega aðlaðandi, en að- laðandi engu að síður. Brunelda er skrímsli kynlífsins á mörkum hins viðbjóðslega og hins æsandi, og aðdáunaróp karlmannanna eru í senn hlægileg (vitaskuld eru þau hlægileg, kynlífið er hlægilegt!) og dagsönn. Auðvitað gat Brod, rómantískur aðdáandi kvenna sem ekki leit á samfarir sem raunveruleika heldur „tákn tilfinning- ar“, ekki séð neitt satt við Bruneldu, ekki vott af raunverulegri reynslu, heldur aðeins lýsingu á „hinum hryllilegu refsingum sem bíða þeirra sem rata ekki rétta veginn“. 7 Fallegustu erótísku lýsingamar sem Kafka skrifaði er að finna í þriðja kafla Kastalans: ástarleikur K. og Friedu. Varla er klukku- stund liðin frá því hann sér fyrst þessa „litlu ljóshærðu konu sem ekki var neitt neitt“, þar til hann liggur í faðmi hennar bak við barborðið „í pollum af bjór og öðrum skít sem þakti gólfið allt“. Skíturinn: óaðskilj- anlegur hluti kynlífsins, kjarni þess. En strax á eftir, fyrir næstu greinarskil, leyfir hann okkur að heyra ljóðlist kynlífs- ins: Þannig liðu stundirnar áfram hver af ann- arri, stundir þar sem þau önduðu í takt, hjörtu þeirra slógu í takt, stundir sem K. hætti að finna til þess að hann hefði villst af leið, nema ef vera skyldi að hann væri kominn lengra inn í hinn framandi heim en nokkur vera hafði komist á undan honum, inn í framandi heim þar sem jafnvel loftið var gerólíkt því lofti sem hann hafði andað að sér frá fæðingu. þar sem hann átti á hættu að kafna úr framandleika og gat ekkert annað gert, mitt innan um allar fáránlegu tálsnörurnar, en að halda áfram, halda áfram að villast af leið. Þau eru svo lengi að elskast að ástarleikur- inn verður myndhverftng gönguferðar und- ir framandi himni. Þó er þetta ekki gönguferð ljótleikans; þvert á móti heill- umst við af henni. Hún býður okkur að ganga enn lengra, hún hefur ölvandi áhrif á okkur: Hún er fegurð. Og enn síðar segir: . . . hann var í of mikilli sæluvímu þegar hann hélt Friedu í faðmi sér, angistarfullri sæluvímu því honum fannst Frieda vera að yfirgefa hann, allt sem hann átti myndi hverfa á brott með henni... Þetta er þó ást, ekki satt? Nei, ekki er það ást; sá sem enginn virðir viðlits og hvergi á höfði sínu að að halla, getur litið svo á að nánast ókunnug kvenmannspísl sem hann kyssir í bjórpollum sé heill heimur útaf fyrir sig — án þess að ástin komi þar nokkuð nærri. 8 André Breton lætur þung orð falla um list skáldsögunnar í Súrrealistaávarpinu. Hann segir skáldsöguna svo fulla af lágkúru. sjálfsögðum hlutum, öllu því sem andstætt er ljóðlistinni, að henni sé ekki við bjarg- andi. Hann hæðist að öllum lýsingum á umhverfi og sálarástandi persónanna og leiðist það herfilega. Strax í kjölfar gagn- rýninnar á skáldsöguna hefur hann upp mikla lofgjörð um drauma. Þvínæst dregur 88 TMM 1991:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.