Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 91

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 91
hann saman mál sitt: „Ég hef trú á því að í framtíðinni leysist þessi tilvistarstig sem virðast svo andstæð, draumur og veruleiki, upp og renni saman í eitthvað sem kalla mætti algeran veruleika, ofurveruleika, ef svo má að orði komast.“ Enn ein þverstæðan: Þessi „upplausn draums og veruleika" sem súrrealistarnir lýstu yfir án þess þó að ná að gera úr henni stórbrotið bókmenntaverk, hafði þegar átt sér stað innan þeirrar bókmenntagreinar sem þeir úthrópuðu svo mjög; í skáldsögum Kafka sem skrifaðar voru á næstliðnum áratug þar á undan. Það er ákaflega erfitt að lýsa, skilgreina, orða þá tegund ímyndunarafls sem Kafka beitir til að heilla okkur. Samruni draums og veruleika, skilgreining sem Kafka þekkti að sjálfsögðu ekki, held ég að varpi nokkru ljósi á þetta. Sama er að segja um aðra setningu sem súrrealistamir héldu mjög upp á, setningu Lautréamonts um feg- urð þess þegar fundum regnhlífar og saumavélar ber óvænt saman: Því ólíkari sem hlutimir em, því magnaðri verður birt- an sem stafar frá þeim þegar þeim slær saman. Ég myndi kalla þetta skáldskap hins óvænta; eða fegurð sem stöðuga furðu. Eða þá að nota hugtakið þéttleika sem mæli- kvarða á gæði verka; þéttleika ímyndun- araflsins, þéttleika óvæntra samfunda. Kaflinn sem ég vitnaði í, þar sem K. og Frieda eru að elskast, er dæmi um geysileg- an þéttleika af þessu tagi. Þessi örstutti kafli, tæplega ein blaðsíða, spannar þrjár ólíkar uppgötvanir um tilveruna (tilvistar- þríhyrning kynlífsins) sem valda okkur furðu því það er svo örstutt á milli þeirra: skíturinn; kolsvört og ölvandi fegurð hins framandlega; og hinn hrífandi og angistar- fulli söknuður. Allur þriðji kaflinn er hvirfilbylur hins óvænta. Á tiltölulega stuttum tíma gerist þetta: K. og Frieda hittast fyrst í gistihúsinu; enda þótt þau séu að stíga í vænginn hvort við annað er samtal þeirra ofur hversdags- legt sökum þess að þriðja persónan er nær- stödd; rninnið um gatið á hurðinni (ofur venjulegt minni sem hér er hafið upp fyrir það að þurfa að vera sannverðugt) sem K. kíkir í gegnum og sér Klamm sofandi inni á skrifstofunni sinni; hópur þjónustufólks sem dansar við Olgu; óvænt grimmdin í Friedu sem rekur fólkið út með svipu og furðuleg hræðslan sem grípur það og verð- ur til þess að það hlýðir henni; eigandi gistihússins sem kemur og K. leggst í felur bak við barborðið; Frieda kemur, tekureftir K. liggjandi á gólfinu bak við barborðið, en þykist ekki vita um hann þegar eigandinn spyr hana að því (og um leið nuddar hún tánum ástúðlega upp við bringuna á K.); ástarleikurinn sem rofinn er þegar Klamm vaknar bak við hurðina og kallar til þeirra; ótrúlegt hugrekki Friedu þegar hún kallar til Klamm: „Ég er með mælingarmannin- um!“; og loks, til að kóróna allt saman (og nú erum við komin langt út fyrir það sem kalla má sannverðugt): Fyrir ofan þau, uppi á barborðinu, sitja aðstoðarmennimir tveir; þeir hafa þá fylgst með þeim allan tímann. 9 Aðstoðannennimir tveir í Kastalanum eru lfkast til merkasti skáldskaparfundur Kafka, gersemin í skáldskaparheimi hans. Það er ekki nóg með að það sé óendanlega kostulegt að þeir skuli vera þama heldureru þeir hlaðnir merkingu: Þeir eru aumir fant- TMM 1991:3 89
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.