Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 106

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1991, Page 106
skapur? Finnst sá maður sem veit hvur er höf- undur hvurs? Hugsar ekki málið meira og minna fyrir mann í misafkáralegum frösum sín- um? Er maður ekki í rauninni alltaf að skrifa ósjálfráða skrift, staga tuggu langdauðra uppúr annarri tuggu enn lengur dauðra? Jú, svarar maður kannski en er þó í sömu mund að hugsa um skáldsögu sem lýsir ýmsum þáttum íslensks þjóðlífs og ýmsum hvötum mannskepnunnar sísona eins og þau brenna á manni frá degi til dags; maður veit að Steinunn Sigurðardóttir tíndi sjálf til orð og raðaði þeim saman af natni þar til upp reis saga sem hefur aldrei verið til í þessari mynd þó að ögn af Lýtingi og Ómari hafi eflaust lifað í Sighvati er hann kvað forðum: „Knútur er und himnum“. Og áður en maður týnist í eigin þönkum reynir maður „að setja punktinn aftan við“ umsögnina um söguna og vonar að minnsta kosti að það sé ekki bara frasi eða ósjálfráð skrift heldur líka alvörupunktur sem táknar í raun endi. Bergljót S. Kristjánsdóttir Að lokinni meðferð Kristján Arnason: Einn dag enn. Mál og menning 1990. 95 bls. Ekki er ólíklegt, að á suma lesendur kunni ljóðabók Kristjáns Arnasonar Einn dag enn að virka eins og einhver hugljúfur tímavillingur. Nú eru bráðum liðnir fjórir áratugir síðan það var boðað með lúðrablæstri og brambolti, að hin forna ljóðlist væri loksins dauð og öll sú mælskulist sem henni fylgdi, rætur hennar í göntlum hefðum löngu fúnar og formsatriði eins og rím og stuðlar ekki annað en vélrænt og úrelt pírumpár, ljóðinu til trafala, sem ætti að þurrkast sem allra fyrst út úr sögunni. I staðinn myndi nú koma alveg ný Ijóðlist í takt við breytta tíma, nútímaljóðið. En Kristján Arnason fer allt aðrar brautir, eins og hann hafi að mestu leyti látið sér þennan boðskap sem vind um eyru þjóta: þótt í kveri hans séu þó nokkur „nú- tímaljóð“, og þau ekki í verri kantinum, eru flest kvæðin ort í hefðbundnu formi — tæpur helm- ingur þeirra er meira að segja af því tagi sem klassískast er af öllu klassísku, sem sé sonnett- ur, — og það er meira en lítið af tilvísunum til fomrar hefðar og menningar. Verðum við þá að líta svo á, að „formbyltingarmennirnir“ marg- rómuðu hafi ekki haft erindi sem erfiði: sé hér enn á ferðinni sá laglega hagorði framsókn- arbóndi úr sveit sem þeirreyndu að kveða niður, og orðinn margefldur eftir að hafa lesið Platon í fjósinu? Undir áhrifum Eftir að deilurnar um ljóðformin fóru að hjaðna (kannske ekki síst vegna þess að menn hættu að láta kvæði skipta sig eins miklu máli og áður) virðast ýmsir hafa hneigst til þess að breiða yfir þær með einhverri hundrað blóma kenningu: það er innihaldið og boðskapurinn sem skiptir máli, var þá sagt eða gefið í skyn, og til að túlka þetta á hvers kyns form rétt á sér, — formið sem slíkt er aukaatriði. Þessi kenning fékk vitanlega aukinn byr undir vængina þegar gagnrýnendur og bókmenntafræðingar fóru að líta svo á, að það væri einnig í þeirra verkahring að huga að rokktextum alls kyns og ísbjarnar- blúsi. Samt sem áður tel ég að gefa beri fullan gaurn að þeim kenningum og viðhorfum sem komu fram með atómskáldakynslóðinni á sín- um tíma, ekki síst þegar gegn þeim er brotið. Því vitanlega höfðu formbyltingarmennimir alveg rétt fyrir sér, þótt það væri kannske ekki nákvæmlega með þeim hætti sem þeir sjálfir hugðu. Vonandi eiga einhvern tíma eftir að rísa upp á skerinu svo harðvítugir fræðimenn í hug- arfarssögu (eða hverju nafni sem greinin kann að nefnast) að þeir geti fjallað á verðugan hátt um hið mjög svo sérkennilega viðhorf íslend- inga til orðsins listar í bundnu máli allar götur frá ntiðöldum og fram til okkar daga. Af ein- hverjunt dularfullum ástæðum urðu þeir smám saman svo gagnteknir af rími í skáldskap, að það var eins og allt annað hætti að skipta máli: 104 TMM 1991:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.