Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 28

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 28
GÚNTER grass mikinn áhuga á áhrifum Mára á Spáni og útfrá þessum „mannfræðilegu“ málefnum tókst okkur að nálgast skáldsöguna sem eitthvað annað og meira en evrópskt fyrirbæri. Við vorum sammála um að sú skáldsagnahefð sem til dæmis hefur haft áhrif á mínar skáldsögur er ekki bara spænsk, heldur einnig márísk. Raunar má segja það sama um Boccaccio: frásagnir hans sem eru felldar hver inn í aðra eru af márískum, arabískum, uppruna og þær hafa frjóvgað gervalla Evrópu. Ég held að þarna sé um að ræða kenningu sem skiptir afar miklu máli fyrir umræðuna í Evrópu núna. Ef Evrópa sameinast í „evrósentrisma“, þeirri hugmynd að Evrópa sé miðja alls, ef hún fer að líta á sig sem virki þá kaftiar hún menningarlega. Allar miklar sviptingar, öll framfaraskref í listinni hafa orðið vegna ytri hvata, þau eru ávöxtur þess að menningarstraumar blönduðust. Um þetta urðum við Goytisolo strax sam- mála. Og hann sagði mér frá því hvað Spánverjar verða sárir þegar þeim er sagt að þegar Cervantes var í haldi í Algeirsborg hafi hann tileinkað sér hina munnlegu frásagnarlist Máranna, en þeir voru á þessum tíma komnir á mun hærra menningarstig en Evrópubúar. A 13. og 14. öld höfðu þeir náð menningarstigi Endurreisnarinnar, en við Evrópubúar náðum því stigi ekki fyrr en þremur öldum síðar. Menn sem vita til dæmis ekki af þessum áhrifum halda að Evrópa sé miðja alls. L.R: Sú staðreynd að skáldin þín í Telktefundinum hittast í stríði til að ræða listir leiðir huga minn að þeirri reynslu sem þú öðlaðist sjálfur á yngri árum sem rithöfundur í síðari heimsstyrjöldinni. G.G.: Ég var sautján ára í stríðslok, en var klæddur í einkennisbúning strax fimmtán ára. Ég mótaðist ungur af hermennsku og síðar af því að vera í haldi Ameríkana. Þetta var hlutskipti sem fjöldi manns af minni kynslóð mátti þola. En það var ekki fyrr en löngu síðar, þegar ég ákvað að verða rithöfundur, sem ég tók eftir því að svo virtist sem ákveðin viðfangsefni væru ætluð mér, að ég yrði að glíma við þau, að Auschwitz væri eitt af því sem stæði Þýskalandi fyrir þrifum. Stríðið er hluti af þessu öllu saman, sú reynsla sem ég öðlaðist á Austurvígstöðvunum þegar ég var sautján ára. Það var nefnilega hrein tilviljun að ég lifði þetta af. Þessi fúllvissa, að ég hafi aðeins lifað af fyrir hreina tilviljun, hefúr fylgt mér allt til þessa dags. I Þýskalandi höfum við margsinnis efnt til umræðna um efni á borð við ,Að komast yfir fortíðina“. Ég hef alltaf verið á móti þessu vegna þess að fortíðin lætur engan komast yfir sig, menn hafa enn ekki fundið neina skýringu á Auschwitz. Þetta er mönnum enn ráðgáta. Adorno hefur sýnt fram á að Auschwitz er nokkurs konar rof í menningunni. Og ég verð að viðurkenna að því meir sem ég eldist því áleitnari verða þessar spurningar.Vitaskuld er þetta reynsla kynslóðar sem 18 TMM 1998:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.