Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 98

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 98
GUÐNl ELÍSSON skiptaform sem Jameson lýsir eiga að víkja fyrir forvitni og umburðarlyndi. Togstreitan einkennist að mati Giroux af fáfræði um menningu annarra. í grein sinni „Resisting Difference: Cultual Studies and the Discourse of Critical Pedgagogy“ ræðir hann hættuna við kenningar um einsleita menn- ingu sem tekur engum breytingum. í bandarísku samfélagi er slík einsleitni sérlega varhugaverð þar sem hún útilokar íjölmörg þjóðarbrot og kynþætti frá hlutdeild í menningarumræðunni. Þess í stað vill Giroux að menntun og kennsla þjóni lýðræðinu. Við eigum að taka mark á röddum framandi samfélagssvæða og viðurkenna um leið takmarkanir eigin raddar. Þá gerum við okkur ljóst að menning er ekki einkaeign ákveðinna forréttindahópa. í þessu ljósi er kennslufræði Kristjáns sérlega athygliverð. Menningarskil- greining hans útilokar annarlegar raddir, því hann gefur til kynna að þær séu aðeins rannsakaðar vegna þess að þær tilheyri minnihlutahópum. I dæminu um Shakespeare og svörtu skáldkonurnar ber hann saman ,hæstu‘ og ,lægstu‘ fulltrúa menningarinnar til að árétta hættuna sem stafar af fleðu- fræðunum. Ljóst er að ógnin við hefðarbókmenntirnar er úr lausu lofti gripin, en þeirri spurningu er enn ósvarað af hverju hann valdi dæmisöguna um svörtu, fötluðu, kúguðu og áreittu konuna með þroskahefta barnið. Sem slík virðist hún vera fulltrúi menningarlegs sjúkleika í huga Kristjáns. Líkt og verk Shakespeares eru frummynd andlegs heilbrigðis er svarta konan margföld fjarlæging frummyndarinnar og þeir sem skrifa um og kenna bækur hennar, stunda fræði sem hvorki eru ,heilnæm né virðingarverð'. í 8. hluta Lesbókar-greinanna beinir Kristján augum að nýjum hugmynd- um í kennslufræði og tekur enn upp dæmið af svörtu skáldkonunni í hjólastólnum. Kristjáni hefur eflaust þótt þessi gamli fulltrúi fleðufræðanna eiga sér eitthvað til málsbóta, því nú gerir hann hana lesbíska líka. Að mati Kristjáns berjast póstmódernistar: af öllu afli gegn hugmyndum um klassíska háskólamenntun og akademískt frelsi og með því að ýta undir öfgar pólitískrar rétthugs- unar („political correctness“). Dæmi: Áherslan á hugsuði eins og Aristoteles, Shakespeare og Einstein er arfleifð karlrembu og rök- miðjuhyggju; í staðinn á að finna lesefni eftir samkynhneigðar blökkukonur í hjólastól. Óbeitin á ritskoðun er húmanísk grilla; auðvitað á ekki að leyfa karlrembum, homma- og kynþáttahöturum að opna kjaft innan veggja háskóla! (c 8) Myndadeild Morgunblaðsins greip þessa staðhæfingu á lofti því hún er notuð sem skýringartexti við mynd greinarinnar þar sem Shakespeare, da Vinci, Goethe, Einstein og Freud hafa allir verið krossaðir út með rauðu tússi (og þá væntanlega ekki í póstmódernísku andófi). Svörtu, fötluðu og lesbísku 88 TMM 1998:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.