Frjáls verslun - 01.10.2007, Page 13
F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 7 13
Forsíðuviðtal
S
elur fyndni í auglýsingum? Það er stóra
spurningin. Hlær fólk að brandaranum
en gleymir vörunni sem er verið að auglýsa?
Grínistinn og leikarinn Jón Gnarr telst núna í
fremstu röð í heimi auglýsinganna – bæði sem
leikari og hugmyndasmiður á auglýsingastofu.
Hann segir það ákveðna tegund leiklistar að nota kómedíu til
að koma skilaboðum á framfæri í auglýsingum – sérstaklega ef
grínið meitlar og áréttar skilaboðin. En hann segist líka margoft
hafa séð fyndnar auglýsingar en ekki muna hvað verið var að
auglýsa í þeim. Þannig geti fyndnar auglýsingar orðið absúrd og
hætt að þjóna þeim tilgangi að fræða og upplýsa um ákveðna
þjónustu eða vöru.
Jón Gnarr er maðurinn á bak við umtöluðustu auglýsingu
ársins, auglýsingu Símans á nýjum myndsíma. Setningar úr
auglýsingunni eru að verða að þekktum frösum manna á meðal.
Eins og: „Er búið að segja gjörið svo vel?“ og „Við erum hér,
hvar ert þú?“
Allir hafa skoðun á auglýsingu Símans sem sniðin er að
„síðustu kvöldmáltíðinni“ og var sett á markaðinn seinni
partinn í sumar. Auglýsingin þykir fyndin – en samt vera mjög
á mörkunum. Fer hún yfir strikið? Það er nú það. En hún fór í
upphafi mjög fyrir brjóstið á fólki. Líklegast ekki lengur. Hún
hefur vanist vel og þeir sem voru á móti henni í fyrstu eru
orðnir mýkri gagnvart henni núna.
Jón Gnarr starfar núna hjá auglýsingastofunni ENNEMM
sem hugmyndasmiður og hann er kominn með vinnutímann
9-5.
Þú réðst þig í starf hugmyndasmiðs hjá auglýsingastofunni
ENNEMM nú í haust - hvernig kom það til?
„Mér hefur fundist auglýsingamarkaðurinn spennandi
vettvangur sem mig hefur langað til að spreyta mig á enda
þekkti ég hann aðeins fyrir. Áhugi minn hefur einnig aukist
í takt við þróun íslenskra auglýsinga sem á síðustu árum eru
farnar að vera svo góðar og skemmtilegar. Það eru ákveðnir
möguleikar fólgnir í auglýsingageiranum fyrir mann eins og
mig og þar fæ ég m.a. tækifæri til að takast á við verkefni sem
ég fengi ekki að gera annars staðar. Auglýsingamennskan á því
mjög vel við mig.“
Hvernig fæddist hugmyndin að hinni framúrstefnulegu
auglýsingu Símans?
„Símauglýsingin með G3 herferðinni var eitt af fyrstu
verkefnunum sem ég fékk hjá ENNEMM. Ég vissi ekki einu
sinni hvað G3 var en las mér til á netinu. Ég fór svo að velta
fyrir mér nokkrum hugmyndum sem ég fékk í félagi við aðra
starfsmenn á auglýsingastofunni.
Þegar ég var að hefja störf hjá ENNEMM var ég með eigin
skrifstofu í JL húsinu hjá Reykjavíkurakademíunni þar sem ég
ætlaði að vinna í gegnum netið og síma. Ég var að innrétta það
herbergi og vantaði borð undir hraðsuðuketil og skrapp því í
Góða hirðinn en þar sá ég eftirprentun af málverki Leonardo
da Vincis, síðustu kvöldmáltíðinni, á 300 krónur. Ég ákvað
að kaupa myndina og hengdi hana upp á vegg í skrifstofunni.
Settist svo niður og fór að vinna. Ég horfði stundum á myndina
og eitt sinn flaug mér í hug: „Hvað ef þessir karlar hefðu haft
TExTI: hruND haukSDóttir • MYNDIR: geir óLaFSSoN o. fl.
Fyndni
í auglýsingum