Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2007, Side 24

Frjáls verslun - 01.10.2007, Side 24
24 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 7 DAGBÓK I N Bjarni Ármannsson væri að vísu farinn frá borði í REi. Kaup- réttarsamningar REi-manna væru úr sögunni. En takið eftir; vinnuskjalið gerir ráð fyrir að starfsmenn REi geti unnið fyrir GGE eins og ef af samrunanum hefði orðið. Er nema von að menn hafi spurt sig hvort Svandís myndi enda á að feta í fótspor Vil- hjálms, fyrrverandi borgarstjóra, því það væri bitamunur en ekki fjár á tillögum þeirra tveggja. Hvaða prinsipp-munur er á að sameina fyrirtækin eða að REi eigi þar 25% hlut og sé í hópi stærstu hluthafa? Er Svandís Vilhjálmur í dular- gervi þegar kemur að REi-mál- inu? 21. nóvember Sölut­ryggja hlut­afjár­ út­boð­ k­aup­þin­gs Morgunblaðið sagði frá því að Kaupþing hefði lokið samn- ingum við erlenda banka um að þeir sölutryggðu hlutafjár- útboð Kaupþings sem ráðist verður í á næstunni. Sam- kvæmt fréttinni verða boðnar út um 200 milljónir nýrra hluta í bankanum á gengi litlu lægra en markaðsgengi (sem er 886 þegar þetta er skrifað 5. des.). Stór hluti útboðsins fer til JC Flowers og félaga sem greiðsla fyrir hollenska bank- ann NiBC sem Kaupþing keypti í sumar. Samið var um þann hluta, ásamt þeim hluta sem JP Morgan og fleiri erlendir bankar kaupa. Össur Skarphéðinsson fór mikinn á blogg- síðu sinni aðfararnótt laugardagsins 24. nóvember sl. Þar sagði hann frá „gríð- arlegum skemmdarverkum sexmenning- anna“ í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðis- flokksins. Lítum betur á bloggið: „Eftir hörð átök um REi, þar sem súru sexmenningarnir í borgarstjórnarflokki íhaldsins réðust af kjafti og klóm gegn samruna REi við Geysi Green hafa talsmenn flokksins gjör- snúist í málinu.“ Síðan kemur þessi áhugaverða túlkun Össurar á því sem er að gerast í REi-mál- inu: „Júlíus Vífill var í fréttum, og ég heyrði ekki betur en hann hefði nú tekið upp afstöðu iðnaðarráðherra, sem sjálfur óttaðist að hann væri orðinn einn eftir í útrásinni. Aldeilis ekki. Júlíus Vífill, og þar með íhaldið, vill nú að REi starfi með öðrum félögum, og jafnvel sameinist þeim og vinni saman að tilteknum verkefnum. Því miður er þetta líklega of seint. Harðvítugustu innanflokksátök seinni ára í Sjálfstæðisflokknum hafa því miður nánast ónýtt vörumerkið REi hvað útrás varðar, og stórskaðað viðskiptavild Orku- veitunnar. Skemmdarverk þeirra má lík- lega meta á milljarðatugi ef miðað er við þá framvindu sem var í kortunum. Svæðin, sem ég hafði milligöngu um í indónesíu og á Filipps- eyjum að gengu til REi voru hvort um sig kringum 60 milljarða dollara virði. Þannig seldust svipuð svæði á frjálsum markaði í sömu viku. Nú renna þau líklega - og eðlilega í stöðunni - til Geysis Green. Einungis það má meta á 6-7 milljarða verðmætatap, sem einungis varð vegna klúðurs sexmenninganna. Þau gerðu sér leik að því að ganga með sleggju á REi í ofstopa sínum í aðförinni að Vilhjálmi Vilhjálmssyni borg- arstjóra. Ég hika ekki við að meta kostn- aðinn af skemmdum þeirra á REi á tugi milljarða. Þá er ótalinn skaðinn sem hlýst af missi lykilmanna en flótti þeirra virðist brostinn á, og láir þeim enginn. Sárast finnst mér að sjá hvernig búið er að særa stolt starfsmanna Orku- veitunnar, sem á undraskömmum tíma byggðu upp glæsilegasta og framsæknasta orku- fyrirtæki í heiminum, og hafa mátt þola pústra og orðahnippingar af hálfu kjörinna borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Menn skulu ekki fara neitt í grafgötur með það, að valdarán sex- menninganna í borgar- stjórnarflokki íhaldsins, sem framið var til að svala særðum metnaði, hefur haft ótrúleg verð- mæti af Reykvíkingum, og laskað Orkuveituna og starfsmenn hennar gríðarlega. Svo endar þessi farsi á því að Júlíus Fífill snýr gjörsamlega við blaðinu fyrir þeirra hönd, og vill nú sameiningu REi við önnur útrásarfyrirtæki, samstarf um verkefni, og sértæka sameiningu um ein- stakar virkjanir. Er þetta lið með réttu ráði?“ Það er ekki oft sem ráðherrar blogga svona - og hvað þá á nóttunni. En hvers vegna hringdi Össur ekki í Dag borgar- stjóra fyrr um daginn og lét hann kippa þessu klúðri sexmenninganna í liðinn? 24. nóvember öSSuR í Ham á n­ætuRn­aR Össur Sk­arphéð­insson í­ næt­ur­ blogginu: „Svæð­in, sem ég hafð­i milligöngu um á Indónesí­u og Filippseyjum að­ gengu t­il REI voru hvort­ um sig k­ringum 60 milljarð­a dollara virð­i.“

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.