Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2007, Side 26

Frjáls verslun - 01.10.2007, Side 26
26 F R J Á L S V E R S L U N • 1 0 . T B L . 2 0 0 7 DAGBÓK I N Fall hlutabréfa og uppstokk- unin í FL Group hafa auðvitað verið heitustu málin í viðskipta- lífinu undanfarið. Nóvember var versti mánuður í Kauphöllinni frá upphafi. Ekki byrjaði des- ember heldur vel og er óhætt að segja að markaðurinn sé í uppnámi - og er þá vægt til orða tekið. Öll hækkun ársins á markaðnum er gengin til baka. Frétt fréttanna er samt uppstokkunin hjá FL Group þar sem Baugur og Jón Ásgeir Jóhannesson tóku öll völd í félaginu og komu því til aðstoðar með því leggja eigna- safn Baugs í fasteignafélögum inn í félagið sem nýtt hlutafé. Um er að ræða allar eignir félagsins í fasteignafélögum. Gengið í þessum viðskiptum var 14,7 eða fjórðungi lægra en gengið hafði verið í síðustu viðskiptum, þ.e. 19,25. Þetta hafði í för með sér að gengið hríðféll þegar Kauphöllin opn- aði morguninn eftir. Sú lækkun kom í kjölfarið á því að gengi félagsins hafði hrapað um 7,9% mánudaginn 3. desember. Þá eru það auðvitað stór- tíðindi að Hannes Smárason, einhver sókndjarfasti forstjóri viðskiptalífsins, sé hættur sem forstjóri félagsins. Það hefði þótt óhugsandi fyrir einu ári. Jón Sigurðsson, aðstoðar- forstjóri FL Group, tók við for- stjórastarfinu. Uppstokkunin á FL Group var kynnt til sögunnar á blaða- mannafundi síðdegis 4. des- ember og kom fram að eigið fé félagsins yrði aukið um 64 milljarða og færi í 180 milljarða króna. Þar af kæmi Baugur með um 54 milljarða króna en fagfjárfestar 10 milljarða. Eftir þessi viðskipti yrði Baugur Group stærsti hluthafinn í FL Group og færi eignarhluturinn úr 17,7% í rösk 38% í fyrsta áfanga hlutafjáraukningarinnar en á næsta ári yrði hlutur Baugs minnkaður niður í 35,9%. Við þetta tækifæri sagði Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnar- formaður FL Group, að félagið væri að draga úr markaðs- áhættu og „verja eiginfjárgrunn- inn“. Síðan sagði Jón Ásgeir: „Menn munu ganga hægt um gleðinnar dyr í nýjum fjárfest- ingum, heldur velja þær mjög vandlega í framtíðinni.“ En lítum á þessi viðskipti tæknilega. Þau eru frekar flókin og um margs konar viðskipti er að ræða. En heildarmyndin er skýr, Baugur setur öll fasteigna- félög sín inn í FL Group til að styrkja það félag. FL Group byrjaði á að kaupa eignasafn Baugs í fasteignafé- 5. desember Jón Ásgeir Jóhannesson: við ERum að vERja EiGin­fjáRGRun­n­in­n­ í fl GRoup Hannes Smárason, fráfarandi forst­jóri FL­Group, Jón Ásgeir Jóhannesson, st­jórnarformað­ur og Jón Sigurð­s­ son, nýr forst­jóri, sát­u fyrir svörum á blað­amannafundi 4. desember.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.