Dagrenning - 01.04.1956, Page 17

Dagrenning - 01.04.1956, Page 17
-------------------------------------------------------------------- og væru það eðlileg málalok þeirrar óheillastefnu sem allar hinar vestrænu stórþjóðir hafa fylgt í utanríkismálum síðustu árin. Rússar stefna mark- vist að því að einangra Bandaríkin, og það væri ekki ónýtt fyrir þá að geta látið Bretland og Frakkland verða fyrstu skotmörk Bandaríkjahers þegar til úrslita átakanna kemur. Sá möguleiki virðist nú næstum vera fyrir hendi. ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ er stórlega lamað af ósamkomulagi og stefnuleysi vestrænu stórveldanna. Frakkland hindrar að Vestur-Þýzka- land fái inngöngu í bandalagið. Norðurlönd, önnur en ísland, neita því um herstöðvar, og nú hefir Vestur-Þýzkaland tilkynnt, að það greiði ekki kostnað af herjum Breta og Bandaríkjamanna í Þýzkalandi, þó þjóðverjar bæðu um það sér til öryggis, að tiltekinn herafli þessara þjóða yrði þar a. m. k. í fimmtíu ár. Og nú ætla Islendingar að segja upp sínum samning- um og ganga úr bandalaginu. Svona er þetta á öllum sviðum: árekstrar, misklíð og velsaldómur. Mjög voru þau ummæli bandaríska utanríkisráðherrans athyglisverð, sem hann viðhafði fyrir skömmu, að ennþá væri of snemmt að fara að ræða um það að leggja Atlantshafsbandalagið niður! Það stendur þá ef til vill til að gera það, svona bráðlega. Svona halda hinar frjálsu þjóðir þá á spilum sínum. Þannig hefir sígið meir og meir á ógæfuhliðina síðan í september 1955, og ekkert útlit er á öðru en áframhaldandi fálmi og úrræðaleysi. En við hverju öðru er að búast? Heiðið og innihaldslaust lýðræði er bæði veikasta og að ýmsu leyti heimskulegasta stjórnarform sem hægt er að hugsa sér. Það er marg- reynt áður í sögunni og hefir ávallt gefist illa. Nú er hið litla, kristilega innihald, sem þetta stjórnarform fyrst hafði, er það kom til sögunnar, alveg að hverfa og því fer nú sem fer. KÝPURDEILAN. Þegar niðurbrotið hófst 1913—1914 höfðu viðsjámar verið mestar og ókyrrleikinn á Balkanskaganum, sérstaklega í Grikklandi. Og þetta er eins nú. Kýpurdeilan, sem ekki er annað en einn þáttur í tilraunum Rússa til að flæma Breta burt frá Miðjarðarhafinu, svo Arabalöndin verði þeim auð- gleyptari bráð, er á yfirborðinu fyrst og fremst árekstur milli Breta og Grikkja, til þess vakin að spilla öllu samstarfi við Balkanþjóðimar, sem þá verða að leita skjóls hjá Rússum. Kýpurdeilan er annars fyrir marga hluta sakir lærdómsrík, og sýnir vel ýmsa þætti í átökum stórveldanna eins og í smásjá. Stefna Sovíetríkjanna er sú að flæma Breta úr allri áhrifa aðstöðu við Miðjarðarhafsbotninn. Þetta hófst með því að Rússar spiltu svo sambúð Júða þeirra, sem stofnuðu fsra- elsríki 1948, og Breta, að þeir urðu að hverfa þaðan. Það gerði þó ekki svo >___________________________________________________________________- DAGRENNING 9

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.