Dagrenning - 01.04.1956, Side 44
Móri við skutinn á bátnum. Myndin er stækkuð
út úr myndinni á bls. 37.
þeir voru gagnkunnugir. Hefir þessi
svartfuglsvilla verið höfð að háði um
sveitina. Oft hefir hann og gert aldrað
fólk andvaka með undarlegum skarkala,
rennt sér t. d. á rassinum alla guðslanga
nóttina niður baðstofuþekjuna. Eða þá
dumpað við og við tvö högg á bæjarþilið.
Gamla fólkið veit þá, hver er á ferðinni.
Þegar ég var strákur, sást Móri oft, og var
honum kennt um flest það, sem fór aflaga
með óeðlilegum eða óvenjulegum hætti.
Sögukorn þetta hefi ég að mestu skráð
eftir sögn móðurföður míns, Guðmundar
Ólasonar, Ólasonar, sem draugurinn var
sendur. Nam hann söguna um viðureign
Óla og Móra af Jóni Helgasyni, sem getið
er um hér að framan. En Óli sjálfur sagði
Jóni.
III.
Myndin af Móra.
Hér skal ekki reynt að leggja neinn
dóm á sannleiksgildi þessarar sögu eða
tilveru þessa Móra yfirleitt, frekar en
annarra af slíku tagi. Þó hefir sá er þetta
ritar talað við aldraða konu, sannorða og
greinargóða, sem nú er búsett í Reykja-
vík, en er fædd og upp alin í Árneshreppi
á Ströndum, sem segist hafa séð veru
þessa, þegar hún var ung stúlka í for-
eldra húsum. Sagðist hún í fyrstu ekki
hafa áttað sig á því, hver þarna var á ferð,
og haldið það vera ókunnan ungling, en
þegar hann sinnti ekki ávarpi hennar, og
hún áttaði sig á því að þetta vra Móri,
varð hún hrædd mjög og forðaði sér til
fólks, eins og fætur toguðu.
★
En nú víkur sögunni til ársins 1934.
Það ár var byggð síldarverksmiðjan á
Djúpuvík við Reykjarfjörð. Helgi Eyj-
jólfsson múrarameistari í Reykjavík hafði
yfirstjórn á því verki, og hafði hann þar
við störf margt aðkomumanna úr Reykja-
vík, auk karla og kvenna úr nágrenninu.
Meðal Reykvíkinganna sem þarna voru
að störfum var ungur trésmiður, Halldór
Guðmundsson að nafni, nú trésmíða-
meistari í Keflavík. Halldór hafði með
sér myndavél og tók margar myndir þar
nyrðra, og er ein þeirra mynd sú, sem
hér er á bls. 37.
Ég hefi átt tal við Halldór um mynd
þessa, sem Helgi Eyjólfsson upphaflega
gaf mér, og fengið leyfi hans til að birta
hana og segja í aðaldráttum sögu hennar.
Sumarið 1936 var það eitt sinn að
Halldór fór ásamt fleira fólki að bæ
einum þar í nágrenninu og gisti þar.
Hann tók í þeirri ferð margar myndir,
og til þess var sérstaklega mælst, að hann
36 DAGRENNING