Dagrenning - 01.04.1956, Side 51
BILLY GRAHAM:
Biblían og dr. Kinsey
c------------'——-----------------------------------------------------------^
Við og við er ennþá minnst á hina svonefndu Kinsey-skýrslu, sem stofn-
un ein í Bandarikjunum gaf út fyrir nokkrum árum og vakti þá mikla at-
hygli. Bretar hafa nú komið sér upp samskonar stofnun undir forustu
manns að nafni dr. Chesser.
Hérlendis hefur engin rödd heyrst til andsvara þessum „skýrslum" og
þykir því rétt að birta hér ádeilu predikarans mikla. Billy Graham’s. á
Kinsey-skýrsluna.
___________________________________________________________________________J
Nálega öll tímarit og dagblöð hafa
sagt frá síðustu bók dr. Alfreðs Kinseys.
Hann kemst ekki af með minna en rúm-
ar 800 blaðsíður til þess að segja frá
mestu leyndarmálum úr einkalífi 5940
kvenna. Ekkert er dregið undan. Það er
ógerningur að gera sér þess fulla grein,
hvílík skaðræðisáhrif bók þessi muni
hafa á amerískt siðgæði, sem nú þegar
er þó orðið harla bágborið.
Ríkjandi siðgæðislögmál hjónabands-
ins er forsmáð, en siðleysið lofsungið.
Ungt fólk er hvatt til að afla sér reynslu
í kynferðismálum áður en það giftist.
Hamingjusömum hjónum fer að
detta ýmislegt í hug hvoru um annað,
þegar þau lesa að fjórða hver kona sé
eiginmanni sínum ótrú. Skýrsla dr.
Kinseys er algerlega röng og óvísinda-
leg, þar sem hann segir, að sjö af hverj-
um tíu konum, sem hafi haft mök við
karlmenn áður en þær giftust, iðrist
þess ekki. Hann hefur áreiðanlega ekki
rætt við neina af þeim milljónum
kvenna t þessu landi, sem hafa endur-
fæðst til kristinnar trúar og telja skír-
lífi, háttprýði og hæversku hinar æðstu
dyggðir. Ég þekki enga kristna konu,
sem myndi gefa kost á sér til slíkrar
rannsóknar og yfirheyrslu.
Guði sé lof fyrir það, að vér eigum
enn milljónir kvenna, sem geta roðnað
— konur, sem trúa því, að skírlífi sé
konunnar æðsta dyggð. Konur, sem
ræða um viðkvæmustu einkamál sín
við þessa rannsóknarmenn eru harla ó-
líkar kristnu kvenfólki í Ameríku.
Þessi einhliða skýrsla dr. Kinseys er
áfellisdómur um amerískt kvenfólk.
Hún verður til þess að börn fara að ef-
ast um tryggð foreldra sinna, auk
ýmissa annarra truflana, sem hún veld-
ur á siðfræðihugmyndum manna.
Vér erúm öll sammála dr. Kinseys
um það, að siðferðisástandið í Ameríku
sé slæmt. En skýrsla hans, sem almenn-
DAGRENNING 43