Dagrenning - 01.08.1958, Blaðsíða 24

Dagrenning - 01.08.1958, Blaðsíða 24
r' Það er mjög athyglisvert, að í þeim átökum, sem nú eru að hefjast milli Austurs og Vesturs eru það Engilsaxar, einir allra vestrænna þjóða, sem koma við sögu svo nokkru nemi. Frakkar og Þjóðverjar, sem til þessa hafa hvað mest komið við sögu og enn eru stórveldi, víkja nú til hliðar, en Bretar og Bandaríkjamenn einir láta málin við Miðjarðarhaf til sín taka. En einmitt þannig segja spádómarnir fyrir að þetta verði. „fsraelsmenn“ — þ. e. engilsaxneskar og norrænar þjóðir — einangrast að mestu frá öðrum þjóðum, en við það hreinsast þær og skírast í deiglu liörmunga og styrjalda. Hlutverk Gógsbandalagsins — járntjaldsríkjanna — er að öðrum þræði það, að sameina ísraelsþjóðina, sem alla tíð hefur haft ákaf- lega mikla tilhneigingu til að liggja í innbyrðis deilum, og er ættkvísl Benjamíns — íslendingar og Norðmenn — frægust þeirra allra fyrir það. Milli Breta og Bandaríkjanna (þ. e. Efraims og Manasse ættkvísla) hefur samkomulagið verið með eindæmum stirt að undanförnu. Nú virðist svo sem átökin við Miðjarðarliafið ætli að sameina þá aftur, a. m. k. í bili, og líklega gefst þeim ekki aftur tækifæri til misklíðar, — Rússar munu sjá um það. Þessi þrjú atriði tala skýru máli til vorra tíma um að gefa gaum að þeim atburðum, sem eru að gerast. Menn ættu að minnast oftar en gert er viðræðu Jesú og Faríseanna og Saddukeanna, sem frá er sagt í Matteus- arguðspjalli á þessa leið: „Faríseamir og Saddukeamir komu til Hans og freistuðu Hans og báðu Hann að sýna sér tákn af himni. En Hann svaraði og sagði við þá: Að kvöldi segið þér: Góðviðri, því himininn er rauður. Og að morgni: Illviðri í dag, því að himinninn er rauður og dimmur. Um himinsins útlit kunnið þér að dæma, en um tákn tímanna getið þér ekki dæmt.“ En það eru einmitt þessi „tákn tímanna“, sem Kristur vill að vér veitum athygli, til þess að vér séum reiðubúnir að skipa oss undir merki Hans, þegar kallið kemur. Hann hefur sagt, að eitt þeirra tákna, sem vér skulum gefa gætur að, sé þetta: „Þá mun verða svo mikil þreng- ing, að engin hefur þvílík verið frá uppliafi heims allt til þessa, né held- ur mun verða.“ Nú segir æðsti framkvæmdastjóri Gógsbandalagsins: „Að áliti Sovétstjórnarinnar er ófriðarhættan í heiminum nú svo mikil, að engin töf megi á því verða að ná samkomulagi og gera skjótar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir að heimsstyrjöld brjótist út,“ (23. júlí 1958), því að sú heimsstyrjöld getur, að hans dómi, þýtt: tortímingu alls mann- kynsins á jörðinni. Það, sem vænta má að gerist á næstu mánuðum, er að Frakkland og Indland hneigist verulega til fylgis við Sovétríkin og að „hlutleysisblokk“ smáríkjanna, undir forustu Svíþjóðar og Júgóslavíu, hallist einnig meira og meira til fylgis við þau, m. a. af hræðslu við heimsstyrjöld. „Samein- v____________________________________________________________________________> 22 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.