Dagrenning - 01.08.1958, Blaðsíða 26
------------------------------------------------------------------------------
komið, er Pakistan næsti bitinn og er Indlantl þá orðið innilokað milli
Kína og Arabiskrar-kommúnistablokkar, og er þá örlagastund Indlands
ekki langt undan og líklegt að þar hefjist þá borgarastyrjöld milli Hind-
ustan og Pakistan.
Jafnframt þessari þróun í Arabalöndum verða átökin einnig hert á
norðurslóðum. Rússar hafa nú þegar mikil ítök í Norðurlöndunum öllum,
þó mest séu þau í Svíþjóð og íslandi, og nota þar aðstöðu sína óspart til
að sundra Atlantshafsþjóðahópnum. Hér á landi geta fljótlega gerzt at-
burðir, sem fáa hefði órað fyrir, en búið er að undirbúa lengi — eins og
byltinguna í írak.
Fomsta Bandaríkjanna í alþjóðamálum hefur gjörsamlega brugðizt,
enda fer traustið á þeim síminnkandi um allan heim. Þau öfl virðast ráða
þar mestu, sem em Evrópuþjóðunum fjandsamleg. Eina vonin um við-
nám gegn útþenslu Sovétríkjanna er nú bundin við Breta. í síðustu heims-
styrjöld börðust þeir einir við hin sameinuðu ríki kommúnista og nazista
— Rússland og Þýzkaland — Stalín og Hitler, og ekki er ólíklegt, að svip-
uð verði örlög þeirra nú við upphaf síðustu heimsstyrjaldarinnar. Lokaþátt-
ur hennar hefst þó ekki fyrr en hin sameinuðu Arabaríki, undir forustu
og með aðstoð Rússa, ráðast á ísrael í Palestínu. „Það er dagurinn, sem
ég hefi talað um,“ segir Drottinn. — Þess dags er nú varla langt að bíða.
•.! >■;
24 DAGRENNING