Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Page 14

Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Page 14
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 24(1) 201514 AðdrAgAndi þemAnáms í KennArAhásKólA íslAnds kennaranna, sem ráðnir voru að skólanum á umræddu tímabili, voru lektorar sem höfðu áður starfað sem fastráðnir kennarar við KÍ um lengri eða skemmri tíma (Gyða Jóhannsdóttir, 2006). Fyrstu starfsár skólans sinntu þessir lektorar, auk kennslu í hinum fámennu árgöngum í B.Ed.-náminu, kennslu við námsbrautir gamla kerfisins – fram- haldsdeild, menntadeild, almennu kennaradeildina og framhaldsnám til stúdentsprófs (aðfarardeildir). Undir þessum kringumstæðum togaðist hið gamla starfshlutverk þeirra á við hið nýja sem var í mótun; má í því samhengi með réttu tala um samsemdar- kreppu (Ólafur J. Proppé, Sigurjón Mýrdal og Bjarni Daníelsson, 1993, bls. 134). Að svo miklu leyti sem leitað var nýrra fyrirmynda um kennsluform má ætla að til- tölulega hefðbundin háskólakennsla hafi verið helsta viðmiðunin – og þá fyrirlestrar- form í þungamiðju. Skólinn sem stofnun og kennarar hans fengu m.ö.o. takmarkað ráðrúm eða aðstöðu til að nálgast hið nýja, krefjandi verkefni – skipulagningu og framkvæmd kennaramenntunar á háskólastigi – óbundnir af öðrum viðfangsefnum og af þeim ferskleika sem æskilegt hefði verið. náMssKiPan saMKVÆMt rEglUgErÐ Í bráðabirgðareglugerðinni um KHÍ 1971 og síðan í reglugerðinni 1974 var kveðið í meginatriðum á um skipan hins nýja kennaranáms. Hvað varðar námsgreinar og vægi þeirra var fylgt mjög náið fyrirmynd danskra kennaraskóla (ÞÍ. Deildarkennarafund- ur 10. nóvember 1971, bls. 112). Tiltekið var í reglugerð hvaða greinar skyldu kennd- ar á hverju misseri hins þriggja ára B.Ed.-náms sem og hve margar kennslustundir skyldu koma í hlut hverrar greinar þau misseri sem þær voru kenndar (svonefndur vikustundafjöldi pr. grein, sjá 11. gr. reglugerðar 1974). Námsgreinunum var skipað í eftirfarandi sjö samstæður eða flokka: Uppeldisgreinar (12 ársvikustundir), félags- greinar (7), mál (6), raungreinar (7), list- og verkgreinar (13), valgreinar (24), sérsvið (6) sem taldist til uppeldisgreina. Samtals gera þetta 75 ársvikustundir sem skiptust þannig á námsárin þrjú að flestar komu á 1. námsár (28) en fæstar á 3. námsár (23). Þetta segir þó ekki alla söguna um fjölda þeirra greina sem voru á kennsluskrá á ein- stökum námsárum eða misserum: í hverjum greinaflokki, einkum á verkgreinasviði, gátu nefnilega verið á kennsluskrá hvers misseris tvær og jafnvel þrjár greinar. Þetta þýddi að á 1. og 2. misseri (1. námsári) voru á kennsluskrá ekki færri en 10 greinar en þeim fækkaði reyndar í 6–7 kennslugreinar á 3. námsári. Hver nemandi lagði stund á annaðhvort tvær bóklegar valgreinar eða eina verklega; svöruðu þær til þriðjungs kennaranámsins í heild. Samkvæmt reglugerð hófst valgreinanámið ekki fyrr en á 3. misseri. Hinir tveir þriðjungar námsins, annars vegar kennslugreinar grunnskól- ans og hins vegar uppeldisgreinar, tilheyrðu svonefndum kjarna, þ.e. námsefni sem öllum nemendum var skylt að tileinka sér. En í daglegu tali var heitið „kjarnagreina- kennarar“ aðallega haft um þá sem önnuðust kennslu í námsgreinum grunnskólans (íslensku, stærðfræði, líffræði, félagsfræði, trúarbragðasögu og kristinfræði). Tvennt vekur einkum athygli þegar menn virða fyrir sér þessa námsskipan. Í fyrsta lagi felur hún í sér engu minni tvístrun námstímans eftir greinum en nemendur áttu á þessum árum að venjast á mennta- og framhaldsskólastigi. Í öðru lagi komu, af

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.