Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Síða 41

Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Síða 41
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 24(1) 2015 41 hAnnA rAgnArsdóTTir þú segðir okkur sem mest frá sjálfri þér, hvað gengur vel og hvað ekki jafn vel. Við höldum að samtalið taki um það bil hálfa klukkustund. Við hljóðritum samtalið og vélritum það svo á eftir. Svo lesum við það og notum upplýsingarnar í rannsókninni. Þú ræður alveg hvort þú vilt tala við okkur. Þú mátt alveg segja nei þótt pabbi þinn og mamma taki þátt í rannsókninni. Þú mátt líka hætta seinna þótt þú talir eitthvað við okkur. Ef þú vilt taka þátt og tala við okkur ertu beðin að skrifa nafnið þitt hér fyrir neðan. Viðtölin við börnin fóru fram á heimilum þeirra. Leitast var við að skapa notalegar að- stæður fyrir börnin. Þau fengu liti og blöð og var m.a. boðið að teikna meðan á viðtali stóð. Að loknu viðtali fengu börnin litla gjöf sem þakklætisvott. Foreldrar voru heima en í öðrum herbergjum til að skapa gott næði fyrir börnin til að tjá sig. Í viðtölunum við börnin var einkum rætt um ættleiðinguna og kjörfjölskyldurnar, skóla og frístundir, vini og áhugamál og tengsl við upprunalandið. Enn fremur voru tekin símaviðtöl við umsjónarkennara allra barnanna vor og haust 2012 til að fá upplýsingar um skólagöngu barnanna og námsframvindu. Kennararnir voru spurðir hvernig börnunum hefði gengið í námi og félagslega og hvernig þeir teldu að þeim myndi vegna í framtíðinni. Loks var vorið 2012 tekið rýnihópsviðtal við hóp stúlkna sem höfðu farið saman til upprunalands síns. Í viðtalinu, sem fram fór á heimili einnar stúlkunnar, voru þær beðnar að segja frá reynslu sinni af ferðalaginu til upprunalandsins. Öll viðtölin voru hljóðrituð og afrituð. Til að gæta persónuverndar og trúnaðar við þátttakendur var öllum nöfnum sleppt í umfjöllun um niðurstöður. Viðtölin voru lesin margsinnis til að fá sem besta innsýn í þau og dregin út áhugaverð atriði, þau borin saman og fundin þemu (Flick, 2006; Kvale, 1996). Þar sem um fámennan hóp er að ræða er greint frá niðurstöðum með nokkuð almennum hætti og eingöngu dregnar fram helstu niðurstöður. Þetta er gert til að leitast við að tryggja trúnað við þátttak- endur. niÐUrstÖÐUr Hér á eftir er gerð grein fyrir helstu þemum sem fram komu í viðtölunum við börnin og kennarana og athygli beint að því sem er sameiginlegt og ólíkt í reynslu barnanna. Þemun eru eftirfarandi: Ættleiðingin og kjörfjölskyldan; skólinn; útlit og uppruni; frí- stundastarf, áhugamál og vinátta; og sjálfsmynd, tengsl við upprunaland og fram- tíðarsýn. Einnig er sérstakur kafli þar sem dregnar eru saman helstu niðurstöður úr viðtölum við kennarana. Þá er greint frá niðurstöðum hópviðtalsins í sérstökum kafla. Ættleiðingin og kjörfjölskyldan Börnin vissu öll að þau voru ættleidd og gátu rætt nokkuð um uppruna sinn. Sum vissu hvar þau höfðu fundist í upprunalandinu og nokkur höfðu þegar heimsótt þá staði aftur. Börnin mundu ekki eftir upprunalandinu en kjörforeldrarnir höfðu allir rætt upprunann við börnin sín, mismikið þó. Sum veltu fyrir sér hvar foreldrar þeirra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.