Reykjalundur - 01.06.1950, Blaðsíða 10
l?p ' I
fc&b'iL \m
IHNp
r- JDH
Frá Reykjalundi — Aírddyri
vAÍt að allir þeir sem mál mitt heyra, vita að
í dag, fyrsta febrúar 1950 eru fimm ár síðan
Reykjalundur — Vinnuheimili Sambands
íslenzkra berklasjúklinga tók til starfa.
Reykjalundur fimm ára
Já, Vinnuheimilið að Reykjalundi er 5
ára í dag, en fyrsti febrúar 1945, og reyndar
1. febrúar ár hvert, hlýtur ávallt að verða
merkisdagur í sögu samtaka okkar, því þá
er fyrsta og stærsta áfanganum í vinnuheim-
ilismálinu náð. Þá höfðu félagssamtök okkar
náð nokkrum stór-áföngum — unnið glæsta
sigra —, sem var grundvöllur fyrir því að
þessu takmarki í vinnuheimilismálinu var
náð svo fljótt sem raun ber vitni. Þeir sigrar
voru aðallega í því fólgnir að góður árangur
varð af fjársöfnunum okkar, — okkur tókst
að fá þjóðina til að skilja, að við börðumst
ekki fyrir neinu liégóma máli, heldur nauð-
synjamáli, sem hvern einstakling varðaði
mikið, — var þjóðarnauðsyn —, við vildum
og viljum enn vinna fyrir velferð allrar pjóð-
arinnar og þá fyrst og fremst þeirra sem erf-
iðast eiga — þeirra, sem heyja baráttuna við
sjúkdómana — oft um margra ára bil og það
á blómaskeiði lífsleiðarinnar. Ég veit að
enginn íslendingur lætur sér nú til hugar
koma, — það sem því miður, örlaði á lijá
einstaka manni — fyrst eftir að samtök
berklasjúklinga voru stofnuð, að þau
mundu vhv>a á móti heilbrigðisyfirvöldum
8
Reykjalundur