Reykjalundur - 01.06.1950, Blaðsíða 58
Ríkisútvarpið
Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunarverk
cr að ná til allra þegna landsins með hverskonar fræðslu og skemmtun, sem því
er unnt að veita.
Aðalskrifstofur útvarpsins
annast utu afgreiðslu, fjárhald, útborganir, samningagerðir o. s. frv. Útvarpsstjóri
er venjulega til viðtals kl. 2—4 síðd. Sími skrifstofunnar 4993. Sími útvarps
stjóra 4990.
Innheimtu afnotagjalda
annast sérstök skrifstofa. Sími 4998.
Ú tvarpsráðið
(Dagskrárstjórnin) hefur yfirstjórn hinnar menningarlegu starfsemi og velur út-
varpsefni. Skrifstofan er opin til viðtals og afgreiðslu frá kl. 2—4 síðd. Sími 4991.
Fréttastofan
annast um fréttasöfnun innanlands og frá útlöndum. Fréttaritarar eru x hverju
héraði og kaupstað landsins. Frásagnir um nýjustu heimsviðburði berast með út-
varpinu um allt land tveim til þrem klukkustundum eftir að þeim er útvarpað
frá erlendum litvarpsstöðvum. Sfmar fréttstofunnar eru 4845 (fréttastjóri)
og 4994.
Auglýsingar
Útvarpið flytur auglýsingar og tilkynningar til landsmanna með skjótum og
áhrifamiklum hætti. Peir, sem reynt hafa, telja útvarpsauglýsingar áhrifamestar
allra auglýsinga. Auglýsingasími 1095.
Verkfræðingur útvarpsins
hefur daglega umsjón með útvarpsstöðinni, magnarasal og viðgerðastofu. Sími
verkfræðings 4992.
Viðgerðastofan
annast um hverskonar viðgerðir og breytingar viðtækja, veitir leiðbeiningar og
fræðslu um not og viðgerðir útvarpstækja. Sínxi viðgerðarstofunnar 4995.
Takmarkið er
Útvarpið inn á hvert heimili. Allir landsmenn þurfa að eiga kost á því, að hlusta
á æðaslög þjóðlífsins; hjartaslög heimsins.
Ríkisútvarpið.