Reykjalundur - 01.06.1950, Page 49
innan hælisveggjanna. Því munu samtíðar-
menn Daníels ávallt geyma minningu hans,
svo djúp spor markaði hann í allt félagslíf
á hælinu.
Ég persónulega þakka honum alla tryggð
hans og vináttu, sem aldrei bar skugga á
allt frá fyrstu kynnum.
Blessuð sé minnings hans.
M. E.
Sigurleifur Vagnsson.
Fæddur 18. júlí 1897. — Dáinn 2. marz 1950
Sigurleifur \'agnssou
Fæddur og uppalinn Vestfirðingur eyddi
Sigurleifur einnig fyrstu starfsárum sínurn
þar vestra, fyrst við sjómennsku og síðar í
17 ár við verzlunarstörf á Bíldudal, unz
hann 1934 flutti suður fyrst til dvalar á
heilsuhæli og síðar til búsetu í Reykjavík.
Sigurleifur var ekki langskólagenginn,
en hæfileikar og elja sköpuðu honum
möguleika til sjálfsmenntunar í tungumál-
um og öðrum hagnýtum fræðnm, er urðu
þess valdandi, að að endurheimtri heilsu
sinni tókst honum að fá starf við fiskideild
atvinnudeildar Háskóla íslands. Þetta starf
sitt, sem var fólgið í aldurrannsóknum á
síld, leysti Sigurleifur at' hendi með slíkri
prýði, að hann varð brátt trúnaðarmaður og
aðalsamverkamaður okkar rnerka fiski-
fræðings, Árna Friðrikssonar. Vegna {ressa
starfs síns dvaldist hann oft langdvöl-
um fjarri heimili sínu, einkum er liann var
að störfum í Noregi. Þrátt fyrir stutta starfs-
ævi var hið gagnmerka starf lians á þessu
sviði þegar viðurkennt, bæði hér heima
og erlendis og við fráfall hans, þótti aug-
Ijóst að skarðið yrði ekki fyllt að sinni.
1921 kvæntist Sigurleifur eftirlifancli
konu sinni Viktoríu Kristjánsdóttur, þau
hjón eignuðust 5 börn. Þar af eru 3 upp-
kornnar dætur á lífi. Yfir heimili þeirra
hjóna hvíldi óvenjulegur glæsibragur, sem
ekki skapaðist af stórum salarkynnum eða
öðrum íburði, heldur af þeim innileik,
þeirri gleði og fölskvalausu vináttutjáningu
sem mætti manni við heimsókn til þeirra.
Þau höfðu hæði komizt í kast við berkla-
veikina, orðið að dvelja samtímis á hæli og
leysa upp heimilið. í santræmi við bjartsýni
þeirra og öfluga trú á sigri hins góða, þá
tókst þeim á skömmum tíma að öðlast þann
bata að þau gátu stofnað heimilið á ný.
Samhent, vinmörg og sístarfandi bjuggu
þau eftir það búi sínu í nærri 11/, tug ára,
unz Sigurleifur sköntmu fyrir síðustu ára-
mót kenndi sjúkdóms, sem þrátt fyrir alla
mögulega viðleitni til úrbóta reyndist ó-
læknandi krabbamein, er dró hann til
dauða þann annan marz síðastliðinn.
Sigurleifur var einn af stofnendum S.í.
B.S., sat í miðstjórn frá upphafi til 1942 og
gengdi gjaldkerastörfum fyrir félagsskap-
inn. 1946 fól sambandsstjórn honum að
taka sæti í stjórn Vinnuheimilisins að
Reykjalundi og því merka starfi gengdi
hann til dauðadags. Hann var stórvirkur
S.Í.B.S. félagi, áhugi hans á félagsmálum,
mannkostir hans og skarpskygni gerðu
Reykjalundur
47