Morgunblaðið - 13.03.2015, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 13.03.2015, Qupperneq 15
Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MARS 2015 Björn Már Ólafsson Skúli Halldórsson „Þessi framganga sýnir veikleika ríkisstjórnarinnar í málinu og ótta hennar við viðbrögð þings jafnt sem þjóðar,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, í sam- tali við mbl.is um þá ákvörðun rík- isstjórnarinnar að taka ekki upp að- ildarviðræður við ESB. Hann segir að stjórnarandstaðan muni hafa samband við forystu ESB til að upp- lýsa um aðdraganda ákvörðunarinn- ar. „Við munum auðvitað þurfa að upplýsa Evrópusambandið um að ríkisstjórnin hafi, með þessari yf- irlýsingu í dag, gert tilraun til að af- vegaleiða Evrópusambandið og halda fram röngum staðreyndum, þar sem umboð Alþingis til ríkis- stjórnar, til að sækja um aðild að sambandinu, hefur aldrei verið aft- urkallað með lýðræðislegum hætti,“ sagði Árni Páll. Skortir lýðræðislegt umboð Guðmundur Steingrímsson, for- maður Bjartrar framtíðar, sagði að ákvörðun ríkisstjórnarinnar hefði komið sér í opna skjöldu. Hann telur hana ekki hafa umboð til að slíta að- ildarviðræðum. „Ég tel að hún hafi ekki stjórnskipunarlegt umboð til þess og heldur ekki lýðræðislegt. Ef þeir vilja slíta þá skulu þeir hafa hugrekki til að leggja þá spurningu fyrir þjóðina.“ Hann segir að tíðindin hafi komið sér í opna skjöldu. „Ég bjóst ekki við því að ríkisstjórnin væri svona óskammfeilin. Og að tala um það að þetta sé eitthvað „sem allir sjái …“ Það voru þúsundir sem mótmæltu á Austurvelli þeirri fyrirætlan ríkis- stjórnarinnar að slíta viðræðunum. Það voru gerðar kannanir sem sýndu að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar vill ekki slíta viðræðun- um,“ rifjar Guðmundur upp. „Er allt í einu orðið eitthvað „aug- ljóst“ að viðræðunum skuli slitið? Og að það sé bara gert með ein- hverju bréfi undir lokun á vinnudegi í nefndaviku þegar þingið er ekki einu sinni í þingsal. Hluti af manni á nú bara erfitt með að taka þetta al- varlega. En ef menn halda að stjórn- mál og ákvarðanataka í samfélaginu geti farið svona fram og gengið svona fyrir sig þá er það grafalvar- legt mál. Að gera þetta í nefndaviku þegar þingið er ekki að störfum og getur ekki rætt þetta, það þykir mér ekki lýsa miklu hugrekki.“ Stjórnskipunarleg hefð brotin Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, efast einnig um stjórnskipunarlegt umboð ríkis- stjórnarinnar til þess að slíta við- ræðunum. „Mér sýnist þarna rík- isstjórnin vera að brjóta ákveðna stjórnskipunarlega hefð, sem er að þegar Alþingi hefur samþykkt ein- hverja stefnumótun í utanríkismál- um, þá verður að leita til Alþingis til þess að breyta þeirri stefnu.“ Katrín telur þessa ákvörðun ríkis- stjórnarinnar skjóta skökku við mið- að við fyrri yfirlýsingar. „Það kom fram í máli ríkisstjórnarinnar fyrir ári að hún ætlaði að leggja þetta fyr- ir þingið. Mér sýnist eitthvað hafa orðið til þess að þeir leggi ekki í að fara aftur með málið inn í þing og vera minntir á sín eigin orð um þjóð- aratkvæðagreiðslu í þessu máli.“ „Aðför að lýðræðinu“ „Þetta er einhver mesta aðför að lýðræðinu sem átt hefur sér stað síðan við fengum okkar fullveldi,“ segir Birgitta Jónsdóttir, formaður Pírata, um þá ákvörðun ríkisstjórn- arinnar að taka ekki upp aðildarvið- ræður við ESB. „Það er vafaatriði sem þarf að skera úr sem fyrst og ég geri ráð fyrir því að það verði gert á fundi þingflokksformanna á morgun, hvort ríkisstjórnin hafi eitthvert umboð til að laumast út úr landi með þetta bréf. Um er að ræða þings- ályktun sem var samþykkt á Alþingi og er ekki hægt að sniðganga nema með því að Alþingi samþykki að hún sé ekki lengur í gildi,“ segir Birg- itta. Þá segir hún engan úr röðum ríkisstjórnarinnar hafa haft sam- band við stjórnarandstöðuna .„Mér finnst þetta mjög alvarleg aðför að lýðræðinu og þingræðinu. Þá finnst mér mjög skrýtið að Sjálfstæðis- flokkurinn láti draga sig út í þetta.“ Ólýðræðisleg vinnubrögð  Stjórnarandstaðan ósátt við að við- ræðum sé slitið án samráðs við Alþingi Árni Páll Árnason Katrín Jakobsdóttir Guðmundur Steingrímsson Morgunblaðið/Golli Mótmæli Hópur fólks lagði leið sína á Austurvöll í gærkvöldi til að mót- mæla því hvernig staðið var að slitum aðildarviðræðnanna við ESB. Birgitta Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.