Reykjalundur - 01.06.1968, Blaðsíða 13
Ljónin og Ijónatemjarinn
um fríður og heimsmannslegur í fasi, gaf af sér
hinn ágætasta þokka.
Þegar á fyrsta fundi var fastmælum bundið, að
hann kæmi til Reykjavíkur á næsta sumri með
cirkusinn fullskipaðan, ljón, fíla, hvítabirni og
skógarbirni auk fjölda listamanna af því tagi, sem
halda uppi skemmtan í þess háttar stofnunum.*
Við gerðum okkur að sjálfsögðu grein fyrir
því atriði, að áhætta nokkur væri þessu fyrirtæki
samfara, en líkurnar þó stórum meiri fyrir hagn-
aði. Ætlað var að ekki veitti af hálfu rými skips,
af þeirri gerð, sem hér annast flutninga, til að
flvtja allt það hafurtask sem þessum cirkus varð
* Síðar í frásögn þessari nefni ég fjölleikafólkið artists,
þykir listamannsnafnið of virðulegt.
að fylgja. m. a. risatjaldið og sæti fyrir 2100 á-
horfendur.
Gerð voru drög að samningi aðila í milli, en
allmörg atriði skilorðsbundin sem að líkum læt-
ur.
Alltaf vorum við reifir og bjartsýnir um árangur
af stórfyrirtæki þessu, þótt við vissum gjörla að
marga þraut varð að leysa og mikið fé út að
reiða fyrr en tekna mætti vænta. Þessu vorum við
annars vanir og úrlausn þrauta lá vel að geðslagi
okkar enda höfðum við ekki fram til þessa mætt
neinni þeirri hindrun á vegi okkar, sem verið
hafði til mikils trafala.
Þegaar á haustið leið hófum við að skrifa bréf
til Rhodins og biðja um leiðbeiningar um allaD
undirbúning að væntanlegri komu hans. En þess
REYKJALUNDUR
11