Reykjalundur - 01.06.1968, Blaðsíða 29

Reykjalundur - 01.06.1968, Blaðsíða 29
heyrði okkur hafa slíkt um hönd. Eru tvö atvik mér ríkust í minni, hvað þetta snertir. Eitt sinn hafði ég fengið að láni mjög ómerki- lega og illa þýdda franska glæpasögu. En nógu var hún æsandi. En einhvern bifur hafði ég þó af því, að ekki mundi pabba líka hún og ætlaði því að lesa hana á laun. Ég var þá innan við 10 ára aldur. Þegar faðir minn var farinn út til verka, settist ég því við bókina. Ég valdi mér stað í auðu rúmi við baðstofudyr. í því voru engin rúmföt, aðeins gæruskinn í botninum. Rúm- hríkurnar voru háar og skárust því upp í hnés- bælurnar, en fæturnir náðu ekki á gólf niður. Það fór því ekki sérlega vel um mig, en ég gleymdi bæði stað og stund. Vissi því ekki fvrri til en faðir minn vatt sér inn, þegar ég var kom- in fram í miðja bók. Pabbi tók af mér bókina að vanda, til að athuga, hvaða bókmenntir ég hefði nú með höndum. Hann blaðaði í henni alllengi að mér fannst, þar sem ég sat og nagaði mig í handarbökin. — Nú tekur hann auðvitað bókina af mér og svo fæ ég snuprur í þokkabót, -hugsaði ég með mér. En svo reyndist ekki. Fað- ir minn rétti mér bókina aftur, opna á sama stað og áður, og mælti með þungri áherzlu: „Það skaltu vita, barnið mitt, að þeir, sem vilja heita menntaðir menn, eyða ekki tíma í lestur svona lagaðra bóka. En þú virðist ætla að fara að sjá um þína menntun sjálf“. Að svo mæltu gekk hann á braut. Ég sat eftir á rúmstokknum og orð hans fóru eldi um sál mína. Þeir, sem vilja heita menntaðir menn! Verri löðrung hef ég ekki á ævi minni fengið. Ég sat með opna bókina, en stafirnir dönsuðu fyrir augum mér. Ekki hafði ég þá hugmynd um aðra menntun en bókmennt- un. En einhvern tíma hafði ég heyrt föður minn skilgreina hugtakið þannig, að það að vera mennlaður þýddi það að vera manni líkur. Og á æskuárum var mín heitasta þrá einmitt sú að komast í tölu skólamenntaðra manna. Nú er skipt þar um, en það er önnur saga. Nú finnst mér mest um þá menntun vert, er ég hef nefnt lífsvit. En hún byggist á því, að maðurinn sé svo vel gerður, að hann kunni að taka þeim þroska, sem lífið sjálft veitir, hvort sem hann er lærður eða leikur. En þetta var nú útúrdúr. Ég var líka nýbúin að læra kvæðið hans Hall- gríms: Ungum er það allra bezt. — Það var for- skrift í skrifbókinni hans Jóns Þórarinssonar. Og þar varð þetta erindi mér ríkast í minni: Oft er sá í orðum nýtur, sem iðkar menntun kæra. En þursinn heimskur þegja hlýtur, sem þrjózkast við að læra. Já, mikið skelfing hlaut það að koma sér illa að vera latur að læra. Því að ekki var ég orðin svo þroskuð að skilja það, að vankunnátta gæti stafað af öðru en leti og kæruleysi. Og með þessu framhaldi átti ég á hættu að verða svo heimsk, að menntuðu fólki þætti ég ekki viðmælandi! Það var hræðileg tilhugsun, enda hvarf mér í einu vetfangi öll löngun til bókarinnar. Ég lét hana niður í kistil og skilaði henni við fyrsta tækifæri. Ég hef aldrei lokið við hana og mundi ekki gera það, þótt ég ætti kost á því. Eftir þetta fór ég að reyna af veikum mætti að leggja þann mælikvarða á bækur, hvort þær myndu við hæfi „menntaðs“ fólks eða ekki. í annað skipti vorum við að koma fyrir heyi í Ytri-húsahlöðunni. Þá mun ég hafa verið 10- 12 ára. Ég studdi sáturnar, en faðir minn hlóð úr. Ég hafði nýlega kynnzt heldri manns dóttur, og var hún ofurlítið flámælt. Ég vildi auðvitað líkjast henni í öllu og fór að temja mér að tala þannig. Nú varð mér á að segja eitthvað svo syngjandi flámælt, að það kvað við. Faðir minn vann öll störf af stökustu snyrtimennsku. Nú kippti hann reipunum undan sátunni svo snöggt, að hún steyptist yfir mig og hafði eftir mér orð- ið og bætti við byrstur: „Hvers konar mál tal- arðu, barn?“ Ég fann að þarna hlaut að vera iagleg pólskekkja hjá mér og varð orðvana. Ég tautaði eitthvað um að hann Brúnn væri að fara til ógagns úti á túni og tók sprettinn út fyrir hól til að losna við að svara. En aumingja Brúnn var alsaklaus. Fleiri dæmi gæti ég nefnt, en þessi tvö eru mér svo rik í minni, að ég gleymi þeim aldrei. REYKJALUNDUR 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.