Reykjalundur - 01.06.1968, Blaðsíða 43
umboðsmenn er þeir náðu til. Fróðleg og gagn-
leg ferð.
— o —
Apríl 9.: Kosnir fulltrúar S. í. B. S. í fulltrúa-
ráð Öryrkjabandalags íslands: Oddur Ólafsson,
Hjörleifur Gunnarsson og Þórður Benediktsson.
Til vara: Júlíus Baldvinsson.
- o —
Að fullu gengið frá innréttingu 3. hæðar
verksmiðj uhússins í Múlalundi. Þar afþiljað
svæði til geymslu á fullunnum varningi til af-
greiðslu og pökkunar. Allur frágangur húsnæðis-
ins hinn fegursti. Heilnæmur vinnustaður. Leigu-
húsnæði Múlalundar að Hjarðarhaga 24 sagt upp
og það rýmt.
— o —
Oddur Ólafsson, yfirlæknir, sat þing alþjóða-
sambands berklavarna (I. U. A. T.), sem haldið
var í Róm 24.-28. sept. Fundinn sátu um 4000
manns, læknar og leikmenn frá 78 löndum. Hinn
heilagi faðir Rómar veitti þingheimi áheyrn og
blessun.
— o —
Verð á merkjum Berklavarnadagsins hækkar
úr 10,00 kr. í 25,00 kr. Til að koma í veg fyrir
hugsanlega sölutregðu vegna þessarar ráðstöfun-
ar var merkið gert jafngildi happdrættismiða.
Vinningur var fólksbíll að frjálsu vali að kaup-
verði allt að kr. 130.000,00. Verð blaðsins einn-
ig hækkað úr 15,00 kr. í 20,00 kr.
Seld merki á Berklavarnadaginn voru 23.869.
Seld voru 9.206 eintök af tímaritinu.
- o —
Okt. 23.: S. í. B. S. 25 ára. í stað þess að efna
til mannfagnaðar af þessu tilefni ákvað sambands-
stjórnin að gefa bókasöfnum Reykj alundar, Víf-
ilsstaða og Kristneshælis, hverju fyrir sig, kr.
25.000,00.
- o -
Stjórnarfundur D. N. T. C. haldinn í Osló 12.
-14. okt. Fulltrúar S. I. B. S. voru þeir Kjartan
Guðnason og Þórður Benediktsson.
Niðurstöðutölur á rekstrarreikningi S. I. B. S.
kr. 7.816.422,00, þar af netto hagnaður kr.
6.122.519,00. Niðurstöðutölur á efnahagsreikn-
ingi voru kr. 65.932.286,00.
- o —
115 sjúklingar nutu lækninga á hinni nýju
endurhæfingarstofnun á fyrsta starfsári hennar.
Þessir sjúklingar fengu samtals 3.231 læknisað-
gerð.
- o —
Vistmenn Reykjalundar í ársbyrjun voru 89.
Á árinu komu 118 vistmenn, en 116 fóru. Meðal-
dvalartími Jjeirra, er fóru, var 9 mánuðir. Vist-
menn í árslok 91.
í Múlalundi störfuðu á þessu ári rúmlega 50
öryrkj ar.
1964.
Engin breyting gerð á tilhögun Vöruhappdrætt-
isins. Vinningaskrá ársins og verð miðans ó-
breytt, 50,00 kr. miðinn.
- o —
Niðurstöðutölur í fjárhagsáætlun S. í. B. S.
þessar: í sjóðsyfirliti kr. 5.890.000,00. Gert ráð
fyrir lántöku úr Erfðafjársjóði kr. 1.100.000,00.
Framlag til Reykjalundar áætlað kr. 3.100.000,00,
Múlalundar kr. 1.628.000,00.
- o -
Febr. 25.: 25 ára afmæli Berklavarnar Reykja-
víkur minnzt með mjög fjölmennu hófi í veizlu-
sal Sigtúns. Form. félagsins, Hróbjartur Lúthers-
son, ávarpaði gesti með hvatningarorðum. Prúð-
mannlegur mannfagnaður, svo orð var á gert.
Þrjú vistmannahús í Reykjalundi í smíðum.
Húsin eru af sömu gerð og þau 11, sem fyrir
voru í smáhýsahverfinu.
Mikið unnið að viðhaldi elztu húsa staðarins,
nýir gluggar settir í og hús máluð.
- o -
5. hæð í skrifstofuhúsi S. í. B. S. að Bræðra-
borgarstíg 9 var öll leigð Bandalagi starfsmanna
41
REYKJALUNDUR