Reykjalundur - 01.06.1968, Blaðsíða 39
MARÍA R. KRISTJÁNSDÓTTIR
Framhald aj bls. 21.
vangi sem annarsstaðar vann María af velvild og
trúfesti og nutu sín þar vel sumir af beztu eigin-
leikum hennar, eins og góðvild og hófstilling.
Fyrir þetta vildi ég flytja alúðarfyllstu þakkir í
nafni deildarinnar í Kristnesi. Sá andi, sem skóp
S. I. B. S. átti rík ítök í huga Maríu Kristjáns-
dóttur. Hann var henni tákn gróandi lífs og göf-
ugra sigra og hún vann samtökunum af fvllstu
heilindum á meðan hún mátti. Um það get ég með
sannindum vitni borið.
Kynni mín af Maríu gáfu mér minningar, sem
ég tel auðlegð að eiga. Hún var grandvör kona í
öllu sínu lífi, gætin og velviljuð og löngum bæði
skyggn og skilningsrík á samferðafólkið. Hún
lagði gott til mála og manna og skapaði sér á-
kveðnar skoðanir, sem ekki reyndist auðvelt að
breyta. Hún var vönd að vinum, en sýndi órofa
tryggð þeim, sem einu sinni höfðu unnið traust
hennar. Á stofu sinni var hún manna sættir löng-
um og umbar ýmsa annmarka í fari félaga sinna
með fádæma þolgæði.
María var bókhneigð mjög, las mikið, unni
bókum og bar gott skyn á þær. Hún vann lengi
í bókasafni sjúklinga í Kristneshæli og sýndi í
því starfi óþreytandi alúð og lipurð. Eru þau ó-
talin sporin, sem hún átti út í bókasafn til að út-
vega sjúklingum lestrarefni, þeim sem ekki fengu
komizt á vettvang til að afla sér þess sjálfir.
Sönghneigð var María, sem hún átti ætt til og
hafði mikið vndi af söng og góðri hljómlist. Guðs-
trú Maríu stóð djúpum rótum, en ekki var henni
gjarnt að flíka tilfinningum sínum um þau efni,
fremur en önnur. Hún duldi mjög vel harma sína
og heita viðkvæmni og bar áratuga heilsuleysi
með mikilli hetjulund og stillingu.
- María Rannveig Kristjánsdóttir fæddist 1. apríl
1895. - Vagga hennar stóð í Glæsibæ í Eyja-
firði og þar ólst hún upp. Að henni stóðu góðar
ættir. Ung að árum giftist hún Auðunni Jóhanns-
syni Forsey, sem varð henni traustur förunautur
í gegn um reynslu áranna. Þeim varð þriggja
barna auðið. Tveir synir eru á lífi, en dóttirin lézt
í blóma lífsins, elskuð og syrgð af foreldrunum
alla stundu.
Þegar börnin voru í bernsku, veiktist María af
berklum og varð að fara á Kristneshæli, en átti
afturkvæmt heim og naut þess um hríð að vera á
meðal ástvina sinna og helga þeim líf sitt. En svo
tók meinið sig upp að nýju, aftur lá leiðin í Krist-
nes og þar kom, að ekki varð unnt að hverfa heim,
nema sem gestur. En það gjörði María, hvenær
BÆNIN
Þetta er bæn mín til þín, Drottinnl - Upprættu vesal-
dóm hiarta míns. — Gef mér styrk til aS bera gleði
og sorg með léttu geði. Gef mér styrk til að láta kær
leika minn sjást af verkunum. Gef mér styrk til uð af-
neita aldrei hinum fátæku né beygja nokkru sinni kné
fyrir ofbeldinu. Gef mér styrk til að hefja sál mína hátt
yfir smámuni hversdagsleikans. Gef mér kraft til að
beygja styrk minn af ástúð undir vilja Jiinn.
Tagore
Hamingjan er heiinafengin og verður ekki tínd í garði
annarra.
GUÐSSÖNNUN
Vér eruin skynsemi gæddar verur. Og það er óhugs-
andi, að skynsemigæddar verur hafi verið myndaðar
af blindu valdi eða skynlausri veru. Það er vissulega
eðlismunur á moldarkekki og hugsjónum Newtons. Andi
Newtons getur aðeins stafað frá öðrum cnn meiri anda.
V oltaire
IIJÁLPSEMI
Eitt golt hef ég lært. Og ég hef alltaf verið og er enn
að læra það. Eigir þú í erfiðleikum eða sértu særður eða
þurfandi, farðu þá til fátæklinganna. Það eru þeir einu,
sem hjálpa — þeir einustu einu.
Steinbeck
REYKJALUNDUR
37