Reykjalundur - 01.06.1968, Blaðsíða 21

Reykjalundur - 01.06.1968, Blaðsíða 21
Jónas Þorgergsson Berklaveiki vó hart að hcnum þegar á æsku- skeiði, rændi hann ljúfri móður, þá er hann var aðeins átta ára að aldri. Skömmu síðar fóstru hans og verndara og enn síðar elskaðri eiginkonu eftir stutt en farsælt samlíf. Og fleiri voru höggin, sem honum vcru greidd. Höggin stóð hann af sér, þótt hann riðaði við cg kjörorð hans í þann tíma var: Eigi skal gráta, heldur safna liði. Um þær mundir var Jónas ritstjóri vikublaðsins Dags á Akureyri og stóð í ströngu. Þá var pólitíkin með harðasta móti, raunar illvíg, og átti hann andstæðingá hatramma við að etja. Þá var það, að Jónas lagði frá sér vopnin og gekk á fund andstæðinga sinna og mæltist til vinskapar og bandalags við þá í baráttunni gegn berklaveikinni, sem þá fór hamförum um alla landsbyggðina. Máli Jónasar var tekið svo sem það var flutt og heilar sættir tókust. í stað pólitískra og jafnvel persónulegra ill- deilna, var rými blaðsins nú varið til svo ástríðu- þrungins cg magnaðs áróðurs fyrir byggingu berklasjúklingahælis að Kristnesi, að allt varð undan að láta og hælið var reist á undraskömm- um tíma, þrátt fyrir úrtölur margra og ógnar- legan fjárskcrt. Jónas hóf verkið með því að beita, fyrstur manna, reku að greftri grunnsins árið 1926. Ári síðar var verkinu lokið og hælið risið. Sókn berklaveikinnar norðan jökla var þar með stöðv- uð og síðan vörn snúið í sókn með árangri, sem alþjóð er kunnur. Margir lögðu sterka og gjörfa hönd að þessu heillaríka slarfi, en víst er um það. að eitthvað hefði framkvæmd dregizt, ef Jónasar hefði ekki þá natið við. Fljótt eftir stofnun S.I.B.S. bauð Jónas því lið sitt og var að því hinn mesti styrkur, enda var maðurinn þá meðal víðkunnustu og áhrifamestu þegna þjóðfélagsins. Hann hafði skipulagt starf- semi Ríkisútvarpsins af mikilli framsýni og veitti því fcrstöðu með ágætum. Jónas elskaði Samband ísl. berklasjúklinga sem hefði það verið hans eigið afkvæmi, fagnaði gengi þess og lagði því allt það lið, sem hann gat. Fcrseti var hann á 10 þingum þess, eða alla þá tíð, er hann mátti því við koma, og öllum þeim þingum sleit hann með ræðunum, sem áð- ur er gelið. Ræðunum, sem aldrei gleymast. Ræð- unum, sem hann samdi í eldmóði fegurstu hug- sjóna og lagði þeim til það göfugasta, er hann átti. Eiginkonu Jónasar, frú Sigurlaugu M. Jónas- dóttur og allri fjölskyldu þeirra, sendir S.J.B.S. samúðarkveðjur. Hugheilar eru kveðjur þær. því að einnig það ber þunga tregans. Þórður Benecliktsson REYKJALUNDUR 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.