Reykjalundur - 01.06.1968, Blaðsíða 16
síðan spurði hann hvort í Reykjavík væri hús,
sem rúmað gæti tjaldið, því óhugsandi væri að
reisa það úti undir berum himni á íslandi í vetr-
arbyrjun. Ekki töldum við vandkvæði á því vera,
en þá urðum við skelkaðir því að um það vissum
við ekkert. Að síðustu mæltum við okkur mót hjá
Sameinaða gufuskipafélaginu í Kaupmannahöfn
kl. 13,30 daginn eftir. Náttuðinn okkur í Hels-
ingj aborg.
3. dagur. 27. september.
Risum árla úr rekkju og lókum okkur far til
Helsingj aeyrar. HugÖumst aka í lest til Kaup-
mannahafnar.
En þegar yfir sundið kom var enga lestarferö
að fá fyrr en kl. 13. Það var of seint fyrir okkur,
sem urðum að vera stundvísir til að spilla ekki
málstaðnum. Tókum því bíl á leigu til Hafnar og
greiddum fyrir mikið gjald af fátækt okkar. Við
ókum nú rakleitt til skrifstofu Sameinaða og vor-
um stundvísir.
Ekki bólaði á Rhodin. Fengum að tala við
Hansen. undirforstjóra. Húsbóndi hans Olsen
aðalforstjóri eyddi fáum stundum í skrifstofunni
enda var hann gríðarlega háttsettur maður. Hefð-
um viÖ aðeins átt við hann að semja frá upphafi
hefði mörg armæÖan frá okkur vikið. Hann
reyndist okkur vel síðar. Ekki verður sama sagt
um Hansen, hann átti eftir að reyna í okkur þol-
rifin í meira lagi.
Nú skyldum við gefa honum skýrslu um farang-
ur cirkussins. Þyngd alls þess sem var fyrirferðar-
lítið, en rúmmál alls sem léttara var. Hvert dýra-
búr eða kassi skyldi mældur svo að ekki skeikaði
sentimetra. Hansen var ekki frá því að flutningur
fengist en vildi engu ákveðnu lofa. Sagði hann
þetta vonda fragt, sem látin yrði sitja á hakanum
ef annar flutningur byðist. Þá er kveðja skyldi
kom Rhodin loksins. Við báðum hann að gefa
nákvæma grein um stærð búranna svo sjá mætti
hvort þau rúmuöust neðan þilja því á því atriði
ylti um flutninginn. Ekki hafði Rhodin neina hug-
mynd um þetta en sagðist mundu afla fullnægj-
andi upplýsinga og senda þær símleiðis daginn
eftir. Ekkert gerði hann málstaÖ okkar til fram-
dráttar, frekar magnaði hann smámunasemi Han-
sens. Okkur grunaði að hann væri að leita undan-
bragða og væri aftur orðinn ófús til fararinnar
enda sveik hann okkur um lofaðar upplýsingai
þegar til kom. Hansen boöaöi okkur á sinn fund
á mánudaginn næstkomandi.
Við buðum Rhodin til miðdegisverðar og lint-
um ekki látum við að stappa í hann stálinu og
gylla íslandsferðina svo að hreint engu var á
bætandi og er þá nokkuð sagt, því skreytingar-
menn vorum við í betra lagi. Maðurinn var sýni-
lega mjög áhrifagjarn og svo fór að hann virtist
þá stundina vera orðinn gallharður í áformi sínu
um ferðina.
Við mæltum okkur mót í Lundi daginn eftir
Lil enn frekari samningaumleitana og athugunar
á farangrinum. Bauð hann okkur að sitja hátíöar-
sýningu sem fram ætti að fara þar í bænum í til-
efni af 80 ára afmæli föður síns cirkuskóngsins,
að viöurnefni Brasil Jack.
4. dagur. Föstudagur 28/9.
GlaÖur og góður dagur rann upp yfir okkur í
því góða gistihúsi Kcng Fredrik við Ráðhús-
torgið. Attum tal við Hansen, sem gaf okkur
góðar vonir um flutninginn en hreint ekkert lof-
orð. KvartaÖi yfir því að Rhodin léti ekki í sér
heyra. „Drottningin“ var nú komin, einum degi á
eftir áætlun og mikiÖ að gera um borð. Þar sem
Hansen hafði sagt, að mikið ylti á vilyrði skip-
stjórans um flutninginn fannst okkur ráðlegt að
vingast við hann. Fórum því um borð í skipið og
hittum þar stýrimanninn að máli, en skipstjórinn
var þá í landi. Stýrimaður var elskulegur og tók
máli okkar vel og lofaði að styðja það. Sagði
hann skipstjóra væntanlegan kl. 16 og skyldum
við bíða komu hans og í sameiningu sækja málið.
Brottfarartími Svíþjóðarferjunnar var raunar
kl. 16 en heldur vildum við missa af ferjunni en
skipstjóranum. Sem betur fór kom hann fyrr en
ætlað var og sigruöum við hann með leiftursókn.
Nutum við þar Reykjalundar sem skipstjórinn
hafði heimsótt og var meir en lítið hrifinn. Sagði
14
REYKJALUNDUR