Reykjalundur - 01.06.1968, Page 20
Brostnir hlekkir
Jónas Þorbergsson
Fœddur 22. febrúar 1885 - Dáinn 6. júní 1968
Aldrei framar mun Jónas Þorbergsson sitja í
forsetastóli á þingum Sambands ísl. berklasjúkl-
inga cg eigi mun þingheimi oftar gefast kostur á
að hlýða þingslitaræðum af hans munni, sitja
sem bergnuminn af hrifningu af andagift þeirri
og málsnilld, sem einkenndi þær allar. Þessar ræð-
ur voru magnþrungin hvöt til dáða og skírskot-
uðu til alls hins bezta, sem í mönnum býr. Áhrif
þeirra greiptu sig í huga áheyrenda og entust
þeim til sáluhjálpar allar til langframa.
Þessar ræður hafa allar verið birtar í tímariti
sambandsins og sett á það svip menningar og
göfgi, enda með því bezta, sem runnið hefir af
snilldarpenna Jónasar. Hann kvaddi okkur þegar
sumarnóttin var albjört, sólfar mikið og ferða-
veður ákjósanlegt. Þá var S.Í.B.S. aðeins 30 ára,
en hann 83.
Við andlát Jónasar urðu margir lil að kveðja
hann með minningargreinum í dagblöðunum, svo
sem vænta mátti, þegar kvaddur er svo þekktur
og umsvifamikill maður í íslenzku þjóðlífi, fjöl-
gáfaður hugsjónamaður, brautryðjandi í menn-
ingarmálum, snillingur hins mælta og ritaða máls,
vígfimur og á stundum óvæginn haráttumaður
fyrir málefnum, sem honum voru hugfólgin og
hann trúði að leiða myndu til þjóðþrifa, en sátt-
fús, ljúfur og óþrasgjarn að öllu því, er að einka-
málum sneri. Góður drengur og vitur, sem j afnan
vildi láta áttavita skynsemi og góðvildar marka
stefnu sína.
Eigi mun hér verða rakinn margþættur ævi-
ferill Jónasar, svo vel sem það hefir verið gert
annars staðar, aðeins getið þess þáttar, sem laut
að starfi hans í þágu S.Í.B.S. og berklavarna á
íslandi.
18
REYKJALUNDUR