Reykjalundur - 01.06.1968, Qupperneq 27
Ólajur Jóhannesson í
skrifstofu sinni
Nýr framkvœmdastjóri
%
Vöruhappdrætti S. í. B. S. var stofnað árið
1949 og hefur því starfað nærfellt í 19 ár. Þórður
Benediktsson liefur verið framkvæmdastjóri þess
frá byrjun fram til síðustu áramóta, og mun það
ekki ofmælt, að hann hafði unnið við það í tvo
áratugi, að með töldum undirbúningi. Vissulega
hefur Þórður unnið þar þrekvirki, einkum við
stofnun þess og skipulagningu. Á S. í. B. S. hon-
um mikið að þakka, þó að fleiri góðir menn hafi
þar lagt hönd á plóginn.
Af honum tók við störfum Olafur Jóhannesson,
skrifstofustjóri hjá S. í. B. S.
í tilefni þessara umskipta spurði ég Ólaf ör-
fárra spurninga:
„Hvenær tókst þú við starfi framkvæmdastjóra
Happdrættisins, Ólafur?“
„Ég tók við því í byrjun árs 1968. Ég hafði
allmikið unnið við Happdrættið síðan 1955 og
ætíð fylgzt með gangi þess af miklum áhuga. Ég
tel mig því vel kunnugan rekstri þess, og er mér
það að sjálfsögðu mikill styrkur, er ég tek nú að
mér forstöðu þess“.
„Hefur ekki Happdrættið verið ykkar stærsti
fjárhagslegi styrkur í starfi?“
„Jú, það hefur það verið. Án þess hefðum við
aldrei kcmið öllu því í framkvæmd, sem unnizt
hefur. Þess má geta til fróðleiks, að frá stofnun
þess árið 1949 til ársloka 1967 hefur hreinn hagn-
aður af því numið um 65 millj. króna, og hefur
öllu því fé verið varið til verklegra framkvæmda
og hjálpar öryrkjum“.
„Hefur happdrættið ekki yfirleitt notið al-
mennra vinsælda alla tíð?“
„Jú, frá upphafi um allt land. Það hefur ætíð
átt sína tryggu viðskiptavini, og ýmsir skipta við
það enn frá byrjun“.
„Hvernig eru svo horfurnar?“
„Ég tel þær góðar. Að vísu kostar þetta alltaf
allmiklar auglýsingar og útbreiðslustarfsemi, en
seldum miðum fer líka alltaf heldur fjölgandi, og
yfirleitt er ég b/artsýnn á framtiðina“.
Ég óska hinum nýja framkvæmdastjóra til
hamingju í starfi sínu - og ég óska þess einnig, að
hagur Happdrættisins megi halda áfram að
blómgast og verða sú máttarstoð öryrkja í fram-
tíðinni, sem það hefur verið frá byrjun.
G. M. Þ.
REYKJALUNDUR
25