Reykjalundur - 01.06.1968, Page 40

Reykjalundur - 01.06.1968, Page 40
sem hún fékk því við komið. Samband hennar við heimilið að Árbakka í Glerárhverfi varð ekki slit- ið. Það var vígt heitri elsku. Ástvinirnir áttu hug hennar og hjarta, en um leið átti hún víðsýna vel- vild lil samferðafólksins - yfirleitt. í langri hælisvist háði María oft harða baráttu við berklana, en þeir urðu henni ekki að aldurtila. Annað kom til, sem olli þrautafullri og langri legu og leiddi til ferðaloka. Þau urðu þann 8. maí sl. vor. María var kvödd hinztu kveðju að Möðruvöll- um í Hörgárdal. Margir fylgdu henni. Sólin skein í heiði og þerraði táramóðuna af augum okkar, sem áttum hér vinar að sakna, vitandi það að nú átti ísland einni færra af ókrýndum hetjum. Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastöðum. ÞÓRÐUR BENEDIKTSSON SJÖTUGUR Framhald af bls. 16. ingu Vinnuheimilisins þegar á næsta ári eftir sam- þykkt þeirra. í öðru lagi, hver einast þingmaður hafði einu sinni eða oftar fengið að heyra hjá Þórði nákvæma greinargerð um ástandið í berkla- málum okkar, um markmið og möguleika S. í. B. S. Þekking þingmanna á högum berklasjúklinga hefur æ síðan verið okkur ómetanlegur styrkur. Og loks: Baráttan fyrir þessu máli og lok þess tryggðu S. í. B. S. starfskrafta Þórðar um alla framtíð. Eftir brottför af hælinu gerðist Þórður erind- rek S. í. B. S., sambandsstjórnarmaður frá 1946, þá varaformaður og forseti frá 1956. Framkvæmdastjóri Vöruhappdrættis okkar var hann frá upphafi til ársloka 1967, er hann lét af því starfi sökum versnandi heilsufars. Formaður stjórnar Múlalundar nú í mörg ár. Þannig mætti lengi telja hin mikilvægu störf, er S. í. B. S. hefir falið honum. Það væri freistandi að greina frá afskiptum Þórðar af fleiri stórmálum S. í. B. S. Þess er þó ekki kostur. Allt blómaskeið S. í. B. S. hefir Þórður verið okkar forystumaður, okkar eldheiti hugsjóna- maður og öruggi leiðtogi, sem faðir og velgjörða- maður fyrirtækja okkar, ætíð jafn reiðubúinn til þess að Ieysa þarfir þeirra og vandamál. Nú sjötugur er Þórður einn af þekktustu og mest virtu þegnum þessa þjóðfélags. Hann hefir verið sæmdur Fálkaorðunni fyrir störf að félags- málum, og orð hans eru jafn mikils metin hvort sem þau eru sögð í sölum Alþingis, í röðum ráð- herra eða öryrkja. Hann er einn þeirra hamingju- sömu manna, sem hafa barizt góðri baráttu með árangri. Við félagar þínir í Sambandsstjórn vottum þér, Þórður, á þessum tímamótum virðingu olckar og þakklæti. Þakklæti fyrir þína farsælu forystu, þakklæti fyrir hlýhug og vináttu, þakklæti fyrir þann lærdóm og lífsreynslu, er við höfum öðlazt á fundarsetum undanfarinna áratuga með þér. Einnig flytjum við eiginkonu þinni, Önnu, og börnum ykkar, hamingjuóskir og eiginkonunni sérstakar þakkir fyrir ótal ánægjustundir og rausn á ykkar gestrisna úrvals heimili. Oddur Ólafsson. ANNÁLL S.Í.B.S. 1961-1968 Framhald af bls. 9. Sept. 17.: Sambandsstjórnin kýs 3 menn í stjórn Múlalundar. Fyrir vali urðu: Þórður Bene- diktsson, Hjörleifur Gunnarsson og Guðmundur Guðmundsson. Varamenn: Júlíus Baldvinsson, Árni Einarsson og Oddur Ólafsson. - o - 13. þing S. í. B. S. var háð í samkomusal S. f. B. S. hússins í Reykjavík dagana 7.-9. sept. Mættir voru 84 fulltrúar frá deildum sambands- ins. Meðal gesta við setningarathöfnina voru for- seti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, Sigurður 38 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.