Húnavaka - 01.05.1963, Síða 15
H ÚNAVAKA
13
Hann Þórður í kaupfélaginu
Hann heitir Þórður Jósefsson. Hún heitir Kristín Þorfinnsdóttir.
Hann er 81 árs. Hún er 70 ára. Hann vinnur í vörugeymsluhúsi
hjá kaupfélaginu, en hún hugsar um litla heimilið þeirra á bakk-
anum við ána. Þau eru þar bara tvö. Ungarnir eru flognir úr hreiðr-
inu — þrír synir og ein dóttir. Þau hafa verið gæfusöm. Börnin
þeirra eru efnisfólk. Framvinda lífsins hefur grundvallazt á hóf-
semi. Erfiðleikarnir aldrei vaxið þeim yfir höfuð, og of auðveld
lífsbarátta aldrei svikizt að þeirra sálarheill.
Svo er það eitt kvöld, þegar flest fólk staðarins sefur að lokinni
blótveizlu, að ég rölti niður á árbakkann, ef vera mætti að gömlu
hjónin vildu segja mér eitthvað frá liðnum tíma, þeim tíma, þegar
lífið var svo óendanlega ólíkt því lífi sem lifað er í dag, en ákaflega
líkt því sem verið hefur með þjóðinni um liðin árahundruð.
í stofunni þeirra er hlýtt og bjart. Hann Þórður er einn 15
systkina, sem ólust upp á Litla-Búrfelli í Svínavatnshreppi á öld-
inni sem leið. — Þar var ekki auður í koti árin þau. —
Hann var ekki settur til mennta, hann Þórður. Allt hans skóla-
nám var einn mánuður, og gekk hann þá út að Tindum. Það var
árið fyrir ferminguna. Sextán ára gamall mátti hann fara að heim-
an, og gerðist hann þá vetrarmaður hjá Jósafat bónda að Holta-
stöðum í Langadal. Skyldi hann ganga þar á beitarhús og gæta 100
sauða bónda, en beitarhús þessi voru vestan Blöndu, þar sem
heitir Holtastaðareitur.
Þá var á ánni lögferja og mátti sauðamaður hafa not hennar, þeg-
ar áin var ekki á haldi. Þetta var ekkert aukvisa verk, sízt unglingi.
Verst var áin. Þegar sunnanrok blés niður dalinn og stóð með
straumi, urðu erfiðleikarnir mestir, ekki sízt þegar skarir voru að
ánni, var þá oft ekki gott að ná landi. Höggvið var vik upp í ís-
brúnina, þar sem lending var fyrirhuguð og þangað varð að stefna
ferjunni, væri þess nokkur kostur. Fyrir Þórði gekk þetta allt giftu-
samlega — mun þar hafa farið saman gætni og áræði.
Eftir nokkurra ára dvöl að Holtastöðum, lá leið Þórðar til Suður-
nesja. Árið 1901 fór hann til Keflavíkur og réðist þar til sjóróðra.
Reri hann þar síðan 10 vertíðir. Aðra tíma árs vann hann hjá bænd-
um í sínu heimahéraði. Vertíðin stóð frá áramótum til 11. maí ár