Húnavaka - 01.05.1963, Blaðsíða 17
HÚNAVAKA
15
izt vel og giftusamlega. A Yzta-Gili bjuggu þau í 30 ár. Byrjuðu
þau sinn búskap 1920. — Keyptu þá jörðina fyrir kr. 3500, sem var
hátt verð að þeirrar tíðar hætti. Dilksverð var þá 4 kr. en fram-
gengin ær á 12—14 kr. Aður en Þórður byrjaði búskapinn var hann
nokkur ár lausamaður og stundaði svokallaða búnaðarvinnu. Dag-
kaupið var þá kr. 1.50 og vinnutíminn 12 tímar. — Á sumrin, um
sláttinn, komst vikukaupið upp í 12 kr. og þótti þá geipihátt.
Nú er Yzta-Gil í eyði. Þetta var harðbýlisjörð, norðaustan veðrin
voðaleg — en allt vaðandi í grasi.
Eitt mesta veður sem Þórður man var 8. febrúar 1925 — svokall-
aður „Togarabylur", en þá fórust 2 togarar á Halamiðum út af
Vestfjörðum og svo segir Þórður frá:
,yÞað sem fyrst vakti athygli mína, sem undanfari þessa stórviðris,
var hið óskaplega brimhljóð, sem barst mér til eyrna utan frá
ströndinni. Þá var logn en dreif niður. Bjarni Einarsson, þá og síð-
ar búsettur á Blönduósi, hefur sagt mér, að það sé eitt mesta brim,
sem hann hafi séð brjóta þar við land. Ég stóð í bæjardyrum og
hugðist ganga til hrossa, en þar sem veður var ekki slæmt ætlaði
ég lítt að hugsa um minn heimanbúnað, en Kristín kom þá fram í
dyr til mín og vildi hafa þar orð um, og varð svo að vera, enda var
ég ekki kominn út úr bænum, þegar hríðin skall á svo að brast í
hverjum rafti. Lítill árangur varð af ferð minni, að vísu rataði ég,
þar sem ég þekkti hverja þúfu, en við ekkert var ráðið, og kom ég
heim með eitt hross.
í þessum sama byl, stóð Benedikt, vinnumaður í Stóra-Dal, yfir
fénu þar, í svo nefndum Vökuhvammi. Mun til þess hafa þurft
harðfengi.
Frá því árið 1908 hefur Þórður ár hvert unnið nokkuð við kaup-
félagið á Blönduósi. Áður en kaupfélagið, sem upphaflega var pönt-
unarfélag, kom til, voru aðeins tvær verzlanir á Blönduósi, Höfners-
verzlun og Möller.
Forgöngumenn um stofnun pöntunarfélagsins voru meðal ann-
arra þeir Brynjólfur í Litla-Dal, Erlendur í Tungunesi og Jón í
Stóra-Dal.
Vörnnni var skipað upp á bátum og borin á bakinu úr bát og
upp á sandinn. Þar tók hver sitt meðan pöntunarfélagið var, og
því dreifingarkostnaður lítill sem enginn. Þótti mörgum sem mjög
brigði til hins betra hvað vöruverð snerti. Þórður hefur fylgzt með