Húnavaka - 01.05.1963, Blaðsíða 69
HUNAVAKA
67
milli Mjóadals og Þverárdals. Þá bjuggu þar hjónin: Rósa Helga-
dóttir og Þorkell Guðmundsson. Auk þeirra hjóna var þar í heimili
fósturdóttir þeirra, Helga Guðmundsdóttir, en hún var nú fjar-
verandi við barnaskólanám. Umræddan sunnudagsmorgun fór
Þorkell fram að Þverárdal. Lét hann féð út áður en hann fór að
heiman. Ætlaði hann að vera fljótur í förum, því að Rósa var nú
ein heima, en hann kom ekki heim þann daginn. Þorkell tafði lítið
eða ekkert í Þverárdal og hraðaði för sinni heimleiðis. Skall nú á
hríðin. Barðist Þorkell fyrst á móti veðrinu, en varð loks að láta
undan síga og náði aftur Þverárdal við illan leik. Ekki vildi Þor-
kell gefast upp við svo búið, enda þarf ekki geturn að því að leiða
að honum hefur ekki verið rótt. Konan ein heima og fé þeirra
óvíst. Þorkell fékk nú harðduglegan mann með sér frá Þverárdal,
en það kom fyrir ekki. Þeir náðu ekki enn Skyttudal. Villtir og
hraktir komust þeir aftur með naumindum að Þverárdal um
kvöldið.
Meðan Þorkell barðist árangurslaust við að komast heim til sín,
háði húsfreyjan í Skyttudal sína baráttu. Og ósigur hennar var
meiri. Það kostaði hana lífið. Fannst hún örend að morgni mánu-
dags skammt frá bænum í Skyttudal. Enginn er hér til frásagnar,
en auðvelt er að geta í eyðurnar. Rósa hefur farið út, til þess að
reyna að bjarga einhverju af fénu. Hríðin og mjöllin tóku hana í
faðm sinn og slepptu henni ekki aftur. Hún taldi aldrei eftir spor-
in, hún Rósa.
Þeir feðgar, Jónas Vermundsson og faðir hans, lentu báðir í
hríðinni, þó að ekki væru þeir saman. Vermundur kom neðan af
Blönduósi, en varð úti á Hnjúkaflóanum. Jónas var þá vetrarmað-
ur í Hamrakoti. Hann „hafði sig við illan leik að Reykjum um
kvöldið." Tæpt stóð með Guðrúnu, systur Gests á Björnólfsstöðum.
„Fannst hún af tilviljun á túninu í Sauðanesi“.
Pétur Lárusson frá Skarði í Skagafirði var þennan dag á leið
vestur í Húnavatnssýslu. Fór hann að morgni sunnudagsins frá
Kálfárdal í Gönguskörðum og ætlaði vestur að Litla-Vatnsskarði.
Lenti hann í mestu þrekraun. Var í rúman sólarhring að hrekjast
þar í fjöllunum ,en hafði sig loks að Kálfárdal í Bólstaðarhlíðar-
hreppi. Hefur Bjarni Jónsson á Bollastöðum skráð þátt um þetta,
sem birtist í 4. bindi ritsins „Hrakningar og heiðavegir“.
Annar maður var að villast á Laxárdal, Jón Jónsson, bróðurson-