Húnavaka - 01.05.1963, Blaðsíða 97
HÚNAVAKA
95
fékk fjallið nafnið Spákonufell, en ekki Spákonufellsborg eins og
kemur fram í húnvetnsku myndinni. Það er afbökun.
Eg beini slíkum málum sem þessum til ungmennafélaganna. Þau
hafa á stefnuskrá sinni málvöndun og málhreinsun. Höfðakaupstað-
ur hefur alla tíð byggzt upp sem útgerðarstaður. Ýmsar sögur eru
sagðar af sjósókn héðan á fyrri tímum, þegar sjóróðrar voru ein-
göngu stundaðir á opnum bátum mismunandi stórum og mikið
harðræði þurfti til að liggja yfir hákarl fleiri dægur á opnum bát-
um í frostum og hríðum. Og ótrúleg ratvísi sjómannsins lýsti sér
í að ná landi á réttum stað í stórviðri og hríðum. En þetta tókst
miklu oftar, en hægt var að vona, eftir viðhorfi nútímamannsins.
Nú er líf okkar Höfðabúa á margan hátt öðruvisi en áður, þó grund-
vallaratriði séu hin sömu.
Nú er sjósókn stunduð hér á 4 vélskipum frá 25 til 70—80 tn.,
3 bátum frá 10—15 tn. og nokkrum minni trillubátum, sem stunda
fiskveiðar á sumrin. Nú eru framleitt hér í kauptúninu hjá báðum
frystihúsunum eftirtalið:
Hraðfrystur fiskur 14.214 kassar, saltfiskur 124 tonn, skreið 63
tonn, freðsíld 2200 tunnur, saltsíld 1257 tunnur, síldarlýsi 600 tn.,
síld 30.000 mál. Slátrað í sláturhúsi kaupfélagsins 8312 kindum.
Húsbyggingar eru hér nokkrar, aðallega íbúðarhús. Félagsheimili
var gert fokhelt í haust. Heyskapur var með minna móti hér í sum-
ar, spretta ekki góð og engin háarspretta. Sauðfé og kúm hefur
fækkað, en miklar afurðir fást af fénu. T. d. 9 vetra gamalli á var
slátrað í haust. Hún hafði komið upp 18 lömbum og fallþungi
hennar var 27 kg. Hún hafði þó gengið með tveim lömbum yfir
sumarið. Nokkuð af kynbótahrútum hefur verið selt héðan, aðal-
lega til Skagafjarðar.
Hafnarvinna var hér nokkur í sumar, aðallega gxjótfylling út fyr-
ir hafnargarðinn. Ráðamenn ríkisins virðast ekki hafa áttað sig á,
að hér er landshöfn fyrir alla sýsluna. Við fáum að vísu framlag frá
ríkinu til hafnarbóta, en alltaf svo lítið að lítið er hægt að gera
nema nauðsynlegustu lagfæringar og viðhald. í vetur fyrir jól gerði
hér stórbrim. Þá brotnaði ca. 5 metra gat á hafnargarðinn (brezka
kerið) að utan verðu. Þetta gat er stórhættulegt höfninni allri.
Nýtt stórbrim getur sprengt jafnvel skarð í gegnum garðinn og
dekkið upp. Rrezka innrásarkerið sem notað var í hafnargarðshaus-
inn heftir ekki verið nógu vel byggt til notkunar hér. Höfn hér í