Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1964, Side 5

Húnavaka - 01.05.1964, Side 5
ÞORSTEINN B. GÍSLASON: (Aiðspjallið Lúk. 8, 4—15. Það er ekki sjaldgæft, að Jesús sæki líkingar og tilvitnanir í nátt- úruna og lögmál hennar, Jiegar hann er að kenna lærisveinum sín- um og tilheyrendum. Það er alveg víst, að hann helir haft næma tilfinningu og glöggt auga fyrir ýmsu því, sem Jxir fór fram. Oft hafðist hann við tímum saman úti í náttúrunnar ríki og samlífið við hana varð lyrir J^að enn nánara. Honum var Jiað fyllilega Ijóst, að margt mátti þar læra um guð og vilja hans, um hin dýpstu rök iífsins og lögmál þess. Sálmaskáldið yrkir því vissulega í anda hans þegar það segir: Guð allur heimur eins í lágu og háu — / er opin bók um þig er fræðir mig, / já hvert eitt blað á blómi jarðar smáu — / er blað, sem margt er skrifað á um þig. Alheimurinn með sínum óendanlega margbreytileik, fegurð og fast mótuðu lög- málum hefir ævinlega borið ríkulegt vitni um skapara sinn og stjórnara tilverunnar. Og mjög er það líklegt, að Jiað hafi einmitt fyrst og fremst verið athugun og eftirtekt manna á fjölbreytni náttúrunnar, sem fyrst lyfti hugum þeirra til umhugsunar og trúar á guð og tilveru hans. Hvort sem litið var út í himingeiminn á heiðríku vetrarkvöldi og tindrandi stjörnumergðin birtist fyrir sjónum manna, eða þeir litu til hinnar undursamlegu fegurðar í blómskrúði vallarins og gróandans á jörðinni, þá hlaut það að vekja aðdáun og lotningu fyrir jieim mætti, sem allt þetta hafði lát- ið verða til og sem stjórnaði allri heimsrásinni. Fyrir því var ekki hægt að loka augunum. Og því næmari sem menn voru, því gleggri augu, sem þeir höfðu fyrir umhverfi sínu og fyrirbærum náttúr- unnar, því meira gátu þeir lesið um guð, eðli hans og eiginleika og jafnvel vilja hans og boð. F.nginn var næmari á þetta en drott-

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.