Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1964, Side 27

Húnavaka - 01.05.1964, Side 27
H VNAVAKA Jón á Eyvindarstöðum var eitt sinn lagður inn á sjúkrahús og þurfti að skera upp á honum augun. Þá varð honum að orði: Hvar sem fór ég brást ei byr bæði um vötn og lendur. Um ævina komst ég aldrei fyrr undir manna hendur. Þegar jörðin Brún í Svartárdal fór í eyði, kvað Gunnar Árna- son prestur á Æsustöðum í Langadal: Lít ég heim að bænum Brún, burt er fólk og hjörðin. Hér er enn þá raunarún rist í móðursvörðinn. Stefán Sveinsson, nú fornbóksali í Reykjavík, kvað: Astin brýnir ungra þrótt, en eldri svínin finna, að eftir vín og vökunótt, verður grínið minna. Ánægjan mér aldrei hvarf, ást og gleði þjóna, en eftir fimmtíu ára starf á ég bara hann Skjóna. Skarphéðinn Einarsson: Fækkuðu ráð að bæta böl brast mig andans hreysti, en síðan, er ég komst á kjöl, kviknaði vonarneisti.

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.