Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1964, Page 15

Húnavaka - 01.05.1964, Page 15
HÚNAVAKA 13 húsnæði og aðbúnaði skólans. A yfirstandandi ári er ráðgert að hefja byggingu á kennarabústað á lóð skólans. I náinni framtíð eru áætl- aðar miklar byggingaframkvæmdir við skólann og hefir þegar verið gerður uppdráttur að byggingum þessum og skipulagningu á skóla- ióðinni. Það sést á þeim örfáu dráttum, sem hér að framan hafa verið dregnir úr sögu hins húnvetnska menntaseturs, að ýmsir erfiðleik- ar liafa orðið á vegi þess. Þó er að sjálfsögðu aðeins getið iítils hluta þeirra margháttuðu erfiðleika, sem brautryðjendur og forustuiið skólans hafði við að etja. Má þar til nefna, liversu oft bar á mis- skilningi og áhugaleysi lijá einstaka ráðandi manni og þó ekki síð- ur hjá miklum fjölda úr fylkingu almennings. Skólanefndir og forstöðukonur skólans sýndu oft lrábæran dugnað og iðulega var mikil fórnfýsi hjá þessum aðilum. Þannig hefir því verið farið á öllum árum skólans, að þörf er á sterkum huga og höndum við stjórn hans. Það væri vissulega vel viðeigandi að minnast nánar einstaklinga, sem hafa unnið og vinna að vexti og viðgangi skólans. En þar sem það er aðaltilgangur þessara fáu orða að minna á merkisafmælið á komandi hausti, verður nákvæmari frásögn ekki að þessu sinni stefnt út á ritvöllinn. Þess má geta, að frá upphafi skólans og til þessa dags hafa náms- meyjar skólans náð því að skipta þúsundum. Það er því víða um land, sem námsmeyjar frá honum hafa borið blys menntunar hans og menningar. En skærast hefir að sjálfsögðu birtu hans borið yfir húnvetnsk heimili. Um ókomin ár þarf svo að verða, að sem flest húnvetnsk húsmæðraefni njóti hinnar notadrjúgu námsvistar í Kvennaskólanum á Blönduósi.

x

Húnavaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.