Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1964, Side 19

Húnavaka - 01.05.1964, Side 19
INGA SKARPHÉÐINSDÓTTIR, BUhuluósi: Rósir handa Mónu Dalurinn ljómaði þann dag er Þórður stórkaupmaður settist að í veiðikofanum við ána, fyrir ofan Hraun. Það hafði lengi rignt, en þann morgun stytti upp. Móna bóndadóttir kom út á lilaðið og horfði niður dalinn, hún sá bílinn koma. Það var auðséð að þar var enginn aumingi á ferð, bíllinn nýjasta módel. Þórður ók varlega heim að Hrauni. Þessir árans sveitavegir, þeim skyldi enginn treysta. Þarna sá hann Mónu standa. Hann hafði séð hana undanfarin sumur, en þá var hún bara stelpa, en nú, hvílík fegurð. Hann stöðvaði bílinn og flýtti sér út. Sæl Móna, en hvað þú ert orðin falleg, lireinasta dama. Hvar er pabbi? Hún rétti honum höndina hálf feimin og horfði á hann. Þórður var hár og orðinn nokkuð feitur, ljós í andliti, með kol- dökk augu, sem horfðu í gegnum mann. Hún bauð honurn í bæinn og faðir hennar kom í flýti utan af túninu til að fagna gestinum. Þórður var kærkominn gestur, það kom með honum líf og fjör. Hann keypti af þeim mjólk og brauð og hlóð á þau gjöfum, ávöxt- um og súkkulaði. Móna litla hafði fært honum mjólkina á kvöldin. Það kom annar svipur á allt þegar Þórður fór á haustin og ein- manaleikinn altók þau. Þetta var ekki staður fyrir unga stúlku eins og Mónu, afdalur þar sem varla sást hræða. Þórður drakk kaffið og hló mikið og masaði. Augu hans leituðu oft til Mónu. Það kom áfergja í svipinn eins og þegar hann festi kaup á nýjum bíl eða leit yfir vörubirgðir sínar. Þessi stúlka svo fersk og ung, hún gæti gefið honum aftur æskuna, gert hann kátan og fjörugan eins og hann var áður, þegar hann var að eltast við Hlíf, sem varð konan hans og olli öllum hans vítis- 2 L

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.